Hamingjuóskir á degi tónlistarskólanna

„Við eigum að berjast fyrir auknum þroska, betri menntun og sannari lífshamingju.“
Um leið og við fögnum því að nú standi fyrir dyrum að endurskoða löggjöf um tónlistarskóla sem eru að stofni til frá árinu 1963 og voru grundvöllur þeirrar miklu eflingar tónlistarkennslu og tónlistarlífs sem raun ber vitni, er ekki úr vegi að vitna í orð Gylfa Þ. Gíslasonar, þáverandi menntamálaráðherra, sem við eigum þá löggjöf að þakka, en dagur tónlistarskólanna er haldinn í tengslum við afmælisdag Gylfa, 7. febrúar.
„Tónlistin er undarsamleg list, e.t.v. undursamlegust allra lista. Í stórbrotnustu verkum tónbókmenntanna birtist einhver mesta snilligáfa sem mannsandinn hefur búið yfir en jafnframt stórkostlegur lærdómur, margslungin kunnátta, þrotlaus vinna. Líklega er tónlistin skýrast dæmi á sviði allra lista og allra vísinda um það að andleg afrek eru ávallt árangur samstarfs snilldar og lærdóms, hugmyndaflugs og strits. En tónlistin býr yfir sérstökum töfrum, einn ljúfastur leyndardómur hennar er að hún túlkar það sem hvorki verður sagt né heldur þagað yfir. Schiller sagði um tónlistina, „myndlistin skal gædd lífi og andríkis krefst ég af skáldinu, en aðeins tónlistin tjáir sálina“. Þetta eru orð að sönnu. Þegar maður hefur jafnmikið að gera og ég hef haft um ævina er nauðsynlegt að nota tómstundir sínar sér til ánægju. Tónlistin hefur verið mín tómstundaiðja. Án þeirrar gleði sem ég hef haft af henni, efast ég um að ég hefði komið því í verk sem ég vildi gera.“ (1980)
„Ég tel jafnaðarstefnuna eiga mikið erindi við Íslendinga eins og raunar við allar þjóðir. Þegar ég var ungur maður var helsta markmið jafnaðarmanna að útrýma fátæktinni. Fátækt skiptir enn meginmáli í þróunarlöndum. En í iðnríkjum nútímans, í iðnríkjum vesturlanda eru vandamálin orðin önnur. Allt of mörgum finnst nú, í þessum þjóðfélögum, líf sitt of tilgangslaust, jafnvel leiðinlegt. Það skortir háleit markmið. Þess vegna finnst mér nú, í þessum þjóðfélögum það eiga vera megin viðfangsefnið að berjast fyrir fegurra og betra mannlífi.“ (1986)
„Ég hef nú á langri ævi, fengist við hagfræði og hagfræðikennslu. Hagfræði eru nytsamleg vísindi en ég er þeirrar skoðunar að þau leysi ekki, né heldur nokkur önnur vísindi, þau vandamál sem við er að etja. Þá spyrja menn um stjórnmálin, góð stjórnmál tryggja frelsi og réttlæti, eða eiga að gera það, en það er nú skoðun mín að þó allir vísindamenn og allir góðir stjórnmálamenn tækju höndum saman og beittu sér af öllu afli, þá myndum við ekki leysa þann vanda sem fylgir því að vera maður. Þau gætu ekki tryggt það að maðurinn yrði hamingjusamur. Hamingjusamur verður maðurinn því aðeins að hann njóti listar og ástar.“ (1997)
„Við eigum að berjast fyrir auknum þroska, betri menntun og sannari lífshamingju.“
Um 15 þúsund nemendur stunda tónlistarnám í um 90 tónlistarskólum á Íslandi.
Til hamingju með daginn!
Fyrir hönd stjórnar FT
Sigrún Grendal