Hamingja og vellíðan í skólastarfi

Fréttir|10. maí 2024

„Að skapa jákvætt skólasamfélag þar sem áhersla er lögð á uppbyggileg samskipti er undirstaða fyrir velgengni og vellíðan, bæði starfsfólks og nemenda,“ segir Ólína Þorleifsdóttir skólastjóri í aðsendri grein í Skólavörðunni.

Ólína Þorleifsdóttir, skólastjóri skrifar: 

„Flestir geta verið sammála þeim staðhæfingum að kennsla sé erfitt starf og að mikilvægt sé að leita leiða til að tryggja vellíðan í starfi. Að skapa jákvætt skólasamfélag þar sem áhersla er lögð á uppbyggileg samskipti er undirstaða fyrir velgengni og vellíðan, bæði starfsfólks og nemenda.     

Í fræðigreininni jákvæðri sálfræði er athyglinni beint að þeim þáttum sem gera lífið þess virði að lifa því og lögð áhersla á styrkleika í stað þess að einblína á það sem er að. Leitað er svara við því hvað við getum gert til að fá meira út úr lífinu, öðlast innihaldsríkara líf og blómstra. Jákvæð sálfræði miðar að því að skilja, rannsaka, uppgötva og kynna þætti sem geta stuðlað að því að einstaklingar og samfélög blómstri.  

Okkur er eðlislægt að beina athygli okkar að því sem gengur illa í stað þess að horfa á það sem gengur vel. Heilinn okkar er einfaldlega hannaður þannig að við tökum frekar eftir því neikvæða heldur en því sem gengur vel, því það hjálpaði mannfólkinu að lifa af áður fyrr. Í nútímanum er þessi neikvæða skekkja ekki eins hjálpleg og því þurfum við meðvitað að beina athyglinni að því jákvæða. 

Er hægt að nýta verkfæri jákvæðrar sálfræði til að auka vellíðan kennara? 

Jákvæð inngrip eru meðvitaðar athafnir og aðferðir sem miða að því að rækta jákvæðar tilfinningar, styrkja jákvæða hegðun og hugsanir. Rannsóknir hafa sýnt fram á að með kerfisbundnum inngripum er hægt að bæta líðan og andlega heilsu verulega. Mestur árangur er tengdur við inngrip sem taka á margvíslegum þáttum og inngrip tengd núvitund (e. mindfulness). En er hægt að nýta jákvæð inngrip til að auka vellíðan í skólastarfi?  

Á undanförnum árum hefur áherslan verið að færast enn frekar á vellíðan. Árið 2008 settu fræðimenn í Bretlandi fram fimm leiðir að vellíðan en leiðirnar byggja á fjölmörgum rannsóknum á þeim þáttum sem sýnt hefur verið fram á að auki vellíðan og hamingju.  

Fyrsta leiðin fjallar um að mynda tengsl. Mikilvægt er að samskiptin séu uppbyggileg; að kennarar og annað starfsfólk geti tjáð sig í hópnum og finni fyrir vellíðan á vinnustað, að vinnufélagar hafi áhuga hver á öðrum og andrúmsloftið einkennist af samheldni og jákvæðum tengslum.  

Önnur leið til vellíðunar er hreyfing. Finndu hreyfingu sem veitir þér gleði og vellíðan. Mikilvægt er að skapa svigrúm til að setja hreyfingu inn í hvern dag, bæði gagnvart starfsfólki og nemendum. Til dæmis að fara í stuttan göngutúr með samstarfsfélaga sem hluta af undirbúningstíma, dansa með nemendum eða stunda aðra hreyfingu.  

Þriðja leiðin er að taka eftir. Fara af sjálfsstýringu og lifa með aukinni meðvitund. Núvitundaræfingar, hugleiðsla og öndunaræfingar eru dæmi um aðferðir til að auka ró og eftirtekt. Það ætti að vera sjálfsagt að taka tíma af deginum til að gera öndunaræfingar eða hugleiða. Rannsóknir hafa sýnt fram á að æfingarnar þurfa ekki að vera langar til að bera árangur en ein til tvær mínútur geta skipt sköpum til að ná tökum á hugsunum sínum, stuðla að ró og minnka stress.

Önnur æfing sem fellur undir þessa leið er að taka eftir góðum hlutum sem gerast á hverjum degi. Æfingin Þrír-góðir hlutir er dæmi um æfingu sem er einföld og áhrifarík til að auka vellíðan og hamingju. Þegar einstaklingur rifjar upp þrjá góða hluti sem hann upplifir í sínu daglega lífi eflast tilfinningar um ánægju og þakklæti. Rannsóknir hafa sýnt að það að gera þessa æfingu gefur jákvæðan árangur, eykur hamingju og vellíðan auk þess sem hún dregur úr einkennum þunglyndis. 

Fjórða leiðin er að halda áfram að læra. Í síðustu Skólavörðu kom einmitt fram að ásókn í Endurmenntunarsjóð hefur verið að aukast en endurmenntun og það að tileinka okkur nýja hluti er eitt öflugasta verkfærið sem við höfum til að stuðla að vellíðan og hamingju. Það að tileinka sér nýjar hugmyndir og prófa sig áfram veitir gleði og er valdeflandi.  

Fimmta leiðin er síðan að gefa af sér. Kennarar gefa af sér á hverjum degi með nemendum sínum. Rannsóknir hafa sýnt fram á að það að gera t.d. góðverk og sýna þakklæti getur aukið vellíðan og hamingju.  

Það vex sem við veitum athygli 

Ein grundvallarspurning í skólastarfi hefur í gegnum tíðina verið: hvert er markmið menntunar. Að mati undirritaðrar ætti meginmarkmiðið að vera að stuðla að alhliða menntun nemenda þannig að þeir geti átt farsælt líf og verið góðar og hamingjusamar manneskjur.  

Því er nauðsynlegt að stuðla að skólamenningu sem ræktar jákvæðar tilfinningar og styður við jákvæða hegðun og hugsanir. Þannig þarf að veita jákvæðum þáttum skólastarfs aukna athygli og stuðla að því að kennarar og annað starfsfólk fái rými til að tileinka sér viðurkennd jákvæð inngrip til aukinnar vellíðunar í starfi og einkalífi. Bæði fyrir sjálfa sig og nemendur sína.   

Það að vinna með börnum og ungmennum er án efa besta starf í heimi. Vissulega krefjandi en miklu oftar skemmtilegt. Mikilvægt er að taka eftir öllum jákvæðu og góðu hlutunum sem gerast í skólum á hverjum degi. Horfa á styrkleikana og vinna markvisst að því að auka vellíðan og hamingju í skólastarfi. Verum stolt af faglegu skólastarfi og stígum skref til aukinnar vellíðunar í skólum!“

 

Heimildaskrá 

Aked, J., Marks, N., Cordon, C., & Thompson, S. (2008). Five ways to wellbeing: A report presented to the Foresight Project on communicating the evidence base for improving people’s well-being. New Economics Foundation. http://www.artshealthresources.org.uk/docs/five-ways-to-wellbeing-a-report-presented-to-the-foresight-project-on-communicating-the-evidence-base-forimproving-peoples-well-being/ Atkins, P. W. B., Sloan Wilson, D., & Haye

Gable, S. L. og Haidt, J. (2005). What (and why) is positive psychology? Review of General Psychology, 9(2), 103. doi:10.1037/1089-2680.9.2.103

Seligman, M. E. P. og Csikszentmihalyi, M. (2000). Positive psychology: An introduction (Vol. 55, No. 1, p. 5). American Psychological Association.

Seligman, M. E. P., Steen, T. A., Park, N. og Peterson, C. (2005). Positive psychology progress - Empirical validation of interventions. American Psychologist, 60(5), 410–421. doi:10.1037/0003-066X.60.5.410

Sin, N. L. og Lyubomirsky, S. (2009). Enhancing well-being and alleviating depressive symptoms with positive psychology interventions: a practice-friendly meta-analysis. Journal of Clinical Psychology, 65(5), 467–487.