Hagnýtt námskeið í upplýsingatækni

Fréttir|2. mars 2015

Vakin er athygli á "Samspil 2015" sem er námskeið í upplýsingatækni fyrir leik-, grunn- og framhaldsskólakennara á öllu landinu. Á námskeiðinu veður boðið upp á:

  • Staðbundið 5 tíma námskeið um tækninýjungar í námi og kennslu og nýjar kennsluaðferðir. Námskeiðið verður haldið víða um land í vor.
  • Tvö vefnámskeið á mánuði um ný verkfæri, kennsluhugmyndir eða hugmyndafræði skólastarfs.
  • Kennslumyndbönd til sjálfsnáms um hagnýt verkfæri og vinnubrögð.
  • Umræðu á samfélagsmiðlum

Lögð verður áhersla á að ekki verði mikið álag á þátttakendur á námskeiðstímanum, þeir hafi val um hvenær þeir sæki fræðsluna sem fram fer á netinu og hægt verður að taka námið til háskólaeininga.

Á vefnámskeiði miðvikudaginn 4. mars kl. 16:15 verður átakið kynnt nánar.

Skráðu þig strax til að til að tryggja þér pláss. Nánari upplýsingar og skráning á vef verkefnisins http://www.samspil.menntamidja.is