Hafa þungar áhyggjur af starfsumhverfi stjórnenda

Fréttir|21. mars 2024

Samtök tónlistarskólastjóra hafa sent frá sér ályktun þar sem lýst er þungum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á skólamálulm í Fjarðabyggð.

Tónlistarskólastjórar hafa áhyggjur af stöðu tónlistarskóla í Fjarðabyggð og vísa þar til fyrirhugaðra breytinga sem bæjarsjórn Fjarðabyggðar hefur boðað. Þeir telja að með breytingunum verði starfsumhverfi tónlistarskólastjóra sett í uppnám og ekki hafi verið viðhaft lögmætt samráð við stjórnendur, kennara og nemendur. 

Af þessi tilefni hafa Samtök tónlistarskólastjóra sent frá sér ályktun þar sem varað er við fyrirhuguðum breytingum. 

Ályktunin hljóðar svo

„Stjórn samtaka tónlistarskólastjóra lýsir yfir miklum áhyggjum vegna framkvæmdar breytinga á starfi tónlistarskóla í Fjarðabyggð. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar ákvað á aukafundi bæjarstjórnar þann 27. febrúar síðastliðinn að umbylta stjórnun í öllum skólum Fjarðabyggðar og þar á meðal tónlistarskólum.

STS hefur þungar áhyggjur af því að starfsumhverfi tónlistarskólastjóra sé sett í slíkt uppnám án lögmæts samráðs við stjórnendur, kennara, foreldra og nemendur. Einnig höfum við áhyggjur af stöðu tónlistarskóla við slíkar breytingar. Stjórnendur þurfa svigrúm og tíma til að þjálfa nýja starfsmenn, sinna starfsmannamálum og sínu faglega forystuhlutverki.“

18.mars 2024

Stjórn Samtök tónlistarskólastjóra