Hækkun á starfsmenntunarstyrk

Fréttir|7. janúar 2014

Þann 3. janúar sl. hækkaði starfsmenntunarstyrkur í A hluta Verkefna- og námsstyrkjasjóðs FG og SÍ í 140.000 kr. á tveggja ára tímabili og er miðað við dagsetninguna þegar styrkurinn er greiddur út. Styrkurinn var 125.000 kr. á tveggja ára tímabili. Hægt er að skoða reglur sjóðsins hér.