Hækka verður grunnlaunin strax
Rúmlega þúsund grunnskólakennarar komu saman á samstöðufundi í Háskólabíói klukkan þrjú í dag. Krafa fundarins var einföld; hækka verður grunnlaun kennara þegar í stað. Hvert sæti í aðalsal Háskólabíós var skipað og þurftu fjölmargir að fylgjast með fundinum í anddyri kvikmyndahússins. Til máls tóku Erla Súsanna Þórisdóttir, Sigrún Björt Cortes, Hjördís Albertsdóttir, Svavar Knútur og Ásta Lóa Þórsdóttir.
Fundurinn samþykkti eftirfarandi ályktun:
„Fjölmennur fundur kennara haldinn í Háskólabíói þriðjudaginn 15. nóvember skorar á borgarstjórn Reykjavíkur að semja strax við Félag grunnskólakennara. Lág laun kennara hafa nú þegar valdið því að grunnskólinn er að drabbast niður, kennarar hyggja á uppsagnir og nýliðun í kennarastétt er alltof lítil. Alvarlegur kennaraskortur blasir við á næstu misserum.
Fundurinn krefst þess að grunnlaun kennara hækki nú þegar þannig að þau taki mið af menntun þeirra og síaukinni ábyrgð. Við förum fram á að Reykjavíkurborg sem stærsta sveitarfélag landsins axli ábyrgð sína á stöðu grunnskólanna með því að hafa forgöngu um nauðsynlegar hækkanir kennurum til handa og bregðist við þeim bráðavanda sem við blasir. Eftir það er nauðsynlegt að hefja uppbyggingu grunnskólanna að alvöru.“
Að fundi loknum fór hluti fundarmanna yfir í Hagaskóla þar sem fundur borgarstjórnar fór fram.
Grunnskólakennarar komu saman víðar um land í dag, meðal annars í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ.