Hækka þarf fjárframlag í Námsgagnasjóð, Þróunarsjóð námsgagna og Sprotasjóð
Þörf er á auknum fjárframlögum í gerð náms- og kennslugagna og aðgerðir til að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi að mati Kennarasambandsins.
Námsgagnasjóður, Þróunarsjóður námsgagna og Sprotasjóður rísa ekki undir hlutverkum sínum þar sem fjárveitingar fylgdu ekki í samræmi við markmið og vegna niðurskurðar í kjölfar hrunsins. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri greiningu Kennarasambandsins á markmiðum menntastefnu um réttindi og velferð nemenda, kennsluhætti og námsumhverfi. Þar segir ennfremur að frá því að Sprotasjóður og Þróunarsjóður námsgagna tóku til starfa hefur árleg heildarupphæð umsókna í þá verið margfalt hærri en úthlutunarfé sjóðanna.
Ljóst er af umsóknafjölda að svörun stjórnvalda hefur engan veginn verið í samræmi við aðsókn í sjóðina. Fjárframlög til Þróunarsjóðs námsgagna og til Námsgagnasjóðs voru skorin niður árið 2011 og áður höfðu fjárframlög til Námsgagnasjóðs verið skorin niður um helming árið 2009. Grunnskólar nota úthlutanir úr Námsgagnasjóði að stærstum hluta til að kaupa kennslubækur og áskriftir að ýmsum vefsíðum og vefsvæðum. Upplýsingar um sjóðina sýna að mikil þörf er á stórauknum fjárframlögum stjórnvalda í raunverulegar aðgerðir á sviði náms- og kennslugagna og aðgerðir til að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi á öllum skólastigum.
Námsgagnasjóður
Greiðsla frá Námsgagnasjóði fyrir hvern grunnskóla innt af hendi til rekstraraðila þeirra hvert ár og tekur greiðsla fyrir hvern skóla mið af fjölda skráðra nemenda í hverjum grunnskóla skólaárið á undan. Grunnskólar nota úthlutanir úr Námsgagnasjóði að stærstum hluta til að kaupa kennslubækur og áskriftir að ýmsum vefsíðum. Fjárframlög til Námsgagnasjóðs voru skorin niður um helming árið 2009 í kjölfar efnahagshrunsins og aftur um 33% árið 2011. Árið 2013 voru 168 grunnskólar starfræktir í landinu, þar af voru 158 grunnskólar á vegum sveitarfélaga, um 35% grunnskóla voru með frá 151–450 nemendur árið 2013, og 32% grunnskóla höfðu 100 nemendur eða færri
{tabulizer:include style[gr.alterora.elemental_2_blue.css] responsive[1] id[tab_Txu8FeUkYH]}
Námsgagnasjóður
Ár
Framlag í milljónir króna
2007
100
2008
100
2009
50
2010
60
2011
40
2012
40
2013
40
2014
54
Þróunarsjóður námsgagna og Sprotasjóður
Frá stofnun Þróunarsjóðs námsgagna og Sprotasjóðs hefur árleg heildarupphæð umsókna verið margfalt hærri en úthlutunarfé sjóðanna. Ljóst er af umsóknafjölda að svörun stjórnvalda hefur engan veginn verið í samræmi við aðsókn í sjóðina.
{tabulizer:include style[gr.alterora.elemental_2_blue.css] responsive[1] id[tab_ZJbuuA9SCw]}
Þróunarsjóður námsgagna
Ár
Fjöldi umsókna
Heildarupphæð sem
sótt var um
Úthlutunarupphæð
Fjöldi
verkefna
2008
131
159 milljónir króna
56,3 milljónir króna
66
2009
134
200 milljónir króna
61,44 milljónir króna
56
2010
175
254 milljónir króna
66,38 milljónir króna
79
2011
150
125 milljónir króna
40,26 milljónir króna
64
2012
140
123 milljónir króna
44,45 milljónir króna
47
2013
144
190 milljónir króna
43,84 milljónir króna
35
2014
162
216 milljónir króna
48,08 milljónir króna
38
2015
124
164 milljónir króna
48,34 milljónir króna
35
{tabulizer:include style[gr.alterora.elemental_2_blue.css] responsive[1] id[tab_CRIYFXegWC]}
Sprotasjóður
Ár
Fjöldi umsókna
Heildarupphæð sem
sótt var um
Úthlutunarupphæð
Fjöldi
verkefna
2009
143
250 milljónir króna
44 milljónir króna
44
2010
128
252 milljónir króna
44,78 milljónir króna
47
2011
127
305 milljónir króna
44 milljónir króna
34
2012
189
400 milljónir króna
43 milljónir króna
46
2013
115
227 milljónir króna
45 milljónir króna
40
2014
124
259 milljónir króna
50 milljónir króna
37
2015
172
360 milljónir króna
49 milljónir króna
45
Nánar um sjóðina:
- Þróunarsjóður námsgagna starfar samkvæmt lögum um námsgögn nr. 71/2007 og reglugerð um sjóðinn nr. 1268/2007. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla til að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla.
- Sprotasjóður er sameiginlegur sjóður fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrár, samkvæmt 15. gr. laga nr. 90/2008 um leikskóla, 34. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla og 53. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla. Kveðið er á um hlutverk sjóðsins í reglugerð nr. 242/2009.
- Námsgagnasjóður hefur það hlutverk að leggja grunnskólum til viðbótarfé til námsgagnakaupa samkvæmt lögum um námsgögn nr. 71/2007 og reglugerð um sjóðinn nr. 1111/2007. Með tilkomu sjóðsins er grunnskólum tryggt aukið svigrúm til námsgagnakaupa til viðbótar við úrval Námsgagnastofnunar.