Hægt og gott á Austurlandi

Fréttir|27. mars 2023

Meira er ekki endilega betra í lífinu og enn síður í ferðalögum.


Við eigum okkur flest þann draum að sumarfríið verði eins og best er á kosið og því mikilvægt að staldra við og spyrja sig hvað vil ég fá út úr fríinu áður en skipulagning hefst.

SlowTravel er hugtak sem hefur á síðustu árum verið að ryðja sér til rúms og eru íslensku þýðingarnar nokkrar. Sumir vilja beinþýða og tala um hæglætisferðamennsku en aðrir telja hugtakið yndisferðamáta eiga betur við.

Það síðarnefnda nær kannski betur utan um hugmyndina því þessi ferðamáti felur í sér ákveðið hugarástand og er ekki bara spurning um hraða ferðalagsins. Þeir einstaklingar sem velja að ferðast á þennan máta eru meðvitaðir um að dvelja í núinu og beina athygli að stað og stund. Þeir leggja upp úr því að ná tengingu við umhverfið og náttúruna, en ekki síður menningu og mannlífið á svæðinu með þátttöku, uppgötvun og slökun.

Hugtakið er nátengt SlowFood því stór þáttur í því að ferðast „hægt“ er að upplifa mat og þá helst úr héraði og/eða beint frá bónda. Þegar dvalið er í heila viku í sumarhúsi gefst einstakt tækifæri til að tileinka sér þessi nálgun. Maður er í heila viku á sama stað og getur því gefið sér tíma til að fara í ólíkar áttir, heimsækja staði án nokkurrar tímapressu og fara um svæði sem eru ekki endilega með þeim vinsælustu hjá þorra ferðamanna.


Austurland er dæmi um landshluta sem tilvalið er að ferðast um með hugarfari yndisferðamennsku. Gersemar landshlutans eru kannski ekki eins þekktar og þær í suðri en það er hluti af töfrunum. Það er til dæmis hægt að taka heilan dag í Óbyggðarsetrið og nágrenni eða ganga um Hallormsstaðaskóg og setjast niður og gera teygjur þegar rambað er á fagran lund. Fara í ferð yfir í Mjóafjörð og ganga með fossaröðinni sem gerir fjörðinn svo einstakan, rannsaka Dalatanga og dvelja í fjörunni með sjávarilminn í vitunum. 

Heimsókn á Vallanes er tilvalin til að njóta þess sem ræktað er á svæðinu, náttúrunnar og kynnast lífrænni ræktun. Móðir jörð er vörumerki staðarins og hægt að fara í hlaðborð með grænmetisréttum í hádeginu yfir sumartímann.

Göngum hægt og hljótt út í hlýja, bjarta nóttina og njótum hverrar stundar.

 

Greinin birtist í Ferðablaði Orlofssjóðs, 1. tbl. 2023