Hægt gengur í viðræðum kennara og stjórnenda í framhaldsskólum við ríkið
Félög framhaldsskólakennara og stjórnenda í framhaldsskólum eru nú í samningaviðræðum við samninganefnd ríkisins um endurnýjun kjarasamnings sem rennur út í lok þessa mánaðar en hátt í 2.000 ríkisstarfsmenn eru í Kennarasambandi Íslands. Fimm samningafundir hafa verið haldnir en félögin kynntu ríkinu samningshugmyndir sínar í byrjun desember. Í ljósi mjög slakrar launa- og kaupmáttarþróunar félagsmanna KÍ í framhaldsskólum undanfarin ár má vænta þess að samningar verði erfiðir.
Eins og fram kom í frétt RÚV um samningamál samtaka opinberra starfsmanna í gær kemur KÍ lakast út. Þetta sýnir skýrsla um launaþróun á vinnumarkaði frá 2006 til 2013. Munurinn á meðaldagvinnulaunum KÍ og helstu viðmiðunarhópa hjá ríki er nú um 17% en meðallaun sérfræðinga á almennum markaði eru næstum tvöföld meðallaun kennara í framhaldsskólum. Grunnlaun nýútskrifaðs framhaldsskólakennara með fimm ára háskólamenntun eru um 300 þúsund krónur á mánuði.
Samninganefndir kennara og stjórnenda í framhaldsskólum leggja áherslu á að í þeirri samningsgerð sem nú er hafin þurfi að leiðrétta laun í framhaldsskólum og gera launakjörin sambærileg og hjá skyldum hópum.
Reykjavík 7. janúar 2014
Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, og Ólafur H. Sigurjónsson, formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum.