Hægt að sækja um styrk til útgáfu tónbóka

Fréttir|27. október 2023

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Námsefnissjóð Sítón og mennta- og barnamálaráðuneytisins

Námsefnissjóður Sítón og mennta- og barnamálaráðuneytisins (NSM) hefur opnað fyrir umsóknir um styrki vegna fyrri úthlutunar vetrarins með umsóknarfrest til 15. nóvember 2023.

Úthlutunarreglur sjóðsins má nú sjá á vefsíðu Sítón eða með því að smella hér. Einnig er umsóknarformið vegna styrkumsókna komið inn á vef Sítón og má líta á það hér.

Sjóðurinn styrkir höfunda tónbóka um hluta höfundarlauna árin 2023-2024 í samræmi við uppgefin markmið í styrktarsamningi aðila um að styrkja útgáfu tónbóka til notkunar í tónlistarskólum.

Sjóðnum er ætlað að stuðla að:

  • nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu tónbóka fyrir tónlistarskóla með það að markmiði að auka framboð og fjölbreytileika námsgagna í takt við þarfir nemenda og skóla.

 Til tónbóka teljast:

  • nótnarit, kennslugögn og fræðirit fyrir tónlistarnám, ásamt tengdu efni á prenti eða stafrænt.

 Í úthlutunarnefnd sjóðsins sitja Gylfi Garðarsson, Össur Geirsson og Aron Örn Óskarsson.

Höfundar kennsluefnis og aðrir áhugasamir eru hvattir til að sækja um styrk fyrir verkefni sem falla að markmiðum sjóðsins.

www.siton.is