Hægt að sækja um í endurmenntunarsjóð grunnskóla

Fréttir|25. febrúar 2025

Hlutverk sjóðsins er að styrkja félagsfólk í FG og SÍ til endurmenntunar.

Endurmenntunarsjóður grunnskóla hefur opnað fyrir umsóknir. Hlutverk Endurmenntunarsjóðs grunnskóla er að veita styrk til endurmenntunar félagsmanna í Félagi grunnskólakennara (FG) og Skólastjórafélagi Íslands (SÍ).

Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir félagsmenn FG og SÍ geta sótt um framlög úr sjóðnum, þar á meðal grunnskólar, skólaskrifstofur, sveitarfélög, háskólar, símenntunarstofnanir, félög, fyrirtæki og aðrir.

Frestur til að sækja um styrk vegna skólaársins 2025-2026 er til klukkan 15:00 mánudaginn 3. mars 2025. 

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á vefsvæði Endurmenntunarsjóðs grunnskóla, umsóknir sendar á öðru formi verða ekki teknar gildar.

Ekki er tekið við viðbótargögnum og því verða allar upplýsingar að koma fram í umsókninni.