Hægt að horfa á streymi frá leiðtogafundi ISTP

Fréttir|25. mars 2025

Langstærsti viðburður á sviði menntamála og umræðu um kennarastarfið hefst í Hörpu í gær. Menntamálaráðherrar og leiðtogar kennarasambanda frá 25 löndum eru mættir til landsins og munu funda með formlegum hætti í dag og á morgun. Formaður KÍ fer fyrir íslensku sendinefndinni.

Áhugasömum gefst kostur á að fylgjast með beinni útsendingu frá setningu alþjóðlega leiðtogafundarins, ISTP, sem hefst í Hörpu í dag. Um er að ræða risastóran viðburð, sem nú er haldinn í 15. skipti, þar sem ráðherrar og forystufólk kennara frá 25 löndum koma saman til að ræða um málefni kennara frá ýmsum sjónarhornum. 

Umræðuefnið er, sem fyrr segir, helgað kennarastarfinu, áskorunum til framtíðar, starfsumhverfi og starfsþróun kennara og hvernig best megi innleiða menntaumbætur. Þar deila þátttökuríki þekkingu sinni og reynslu um hvernig stuðla megi að gæðamenntun með öfluga kennara við stjórnvölinn. Þrjú þemu verða tekin fyrir er snúa að

  • hágæða leikskólastarfi sem grunn að jöfnuði og inngildandi menntun,
  • stuðningi við kennara með öflugri skólaþjónustu með jöfnuð og vellíðan að leiðarljósi,
  • hlutverki kennara í barnvænu menntakerfi: stuðningur við virka þátttöku og valdeflingu barna.

Fulltrúar landanna komu saman í gær, á svokölluðum forfundi, þar sem rætt var um íslenskt skólakerfi, með áherslu á kennslu yngri barna. Þá var rætt um áskoranir, gagnsemi og vá sem aukinn kraftur gervigreindar hefur í för með sér. 

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, ávarpaði fundinn í gær, og fór yfir megináherslur íslenska skólakerfisins, skort á kennurum og ekki síst hvernig sameinað Kennarasamband náði sögulegum árangri nýafstaðinni samningalotu. Þá var erlendu gestunum boðið að heimsækja tíu skóla í gær.

Guðmundur Ingi Kristinsson, nýr menntamálaráðherra þjóðarinnar, tekur þátt í viðburðinum. 

 

Streymi i dag og á morgun

Hægt verður að fylgjast með fyrsta hluta leiðtogafundarins í beinu streymi sem stendur frá 9:30 til 11:30 í dag, þriðjudaginn 25. mars. Á morgun verður jafnframt hægt að fylgjast með síðasta hluta fundarins.

Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, stýrir fundinum.

„Kennarasamband Íslands er stolt að taka á móti erlendum gestum á ISTP 2025, sem sýnir þá stöðu sem íslenskt skólakerfi hefur á vettvangi alþjóðasamstarfs. Við hlökkum til að kynna gestum starf allra skólastiga og taka þátt í stefnumarkandi umræðu um skólamál almennt í heiminum,“ segir Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands.