Hægt að bóka sumarhús erlendis frá og með mánudegi

Um er ræða tvö sumarhús skammt frá Alicante á Spáni og íbúð á Englandi.
Orlofssjóður KÍ opnar fyrir bókanir sumarhúsa erlendis klukkan 18 næstkomandi mánudag, 30. janúar 2017. Um er að ræða tvö hús í Ciudad Quesada, skammt frá Alicante á Spáni, og íbúð í Bournemouth á Englandi. Mögulegt er að fleiri sumarhús erlendis bætist við á næstu vikum og hvetur Orlofssjóður félagsmenn til að fylgjast með á Orlofsvefnum.
Bókanir innanlands fyrir næsta sumar hefjast í apríl og verða sem hér segir:
mánudagur
3. apríl
kl. 18.00
þeir sem eiga 300 punkta eða fleiri
þriðjudagur
4. apríl
kl. 18.00
þeir sem eiga 100 punkta eða fleiri
miðvikudagur
5. apríl
kl. 18.00
þeir sem eiga 1 punkt eða fleiri
fimmtudagur
6. apríl
kl. 18.00
þeir sem eiga 0 til -23 punkta og FKE*
*Félagar í FKE geta bókað ef þeir eiga punkta.
Breytt helgarleiga og spurningakönnun
Sú breyting hefur verið samþykkt í stjórn Orlofssjóðs að helgarleiga er að lágmarki tvær nætur, frá föstudegi til sunnudags, í orlofshúsum KÍ á Flúðum og í Kjarnaskógi. Þessi regla á ekki við um orlofsíbúðir í Reykjavík og á Akureyri.
Þá eru félagsmenn hvattir til að kynna sér aðra orlofskosti; svo sem útilegu-, veiði- og golfkort sem eru niðurgreidd, hótelmiða, flugávísanir og endurgreiðslu vegna gönguferða.
Orlossjóður mun á næstunni senda út spurningakönnun þar sem félagsmenn verða spurðir um orlofskosti, húsakost, gæludýr og fleira. Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt í könnuninni og koma þannig sinni skoðun á framfæri.
Orlofshús að Sóleyjargötu 25 verður lokað frá og með 24. apríl næstkomandi og fram á haust vegna viðhalds.
Allar nánari upplýsingar eru á Orlofsvefnum og einnig er hægt að senda fyrirspurnir á orlof@ki.is.