Hægt að bóka sumarhús erlendis á mánudag
Fréttir|10. mars 2016
Orlofssjóður KÍ opnar fyrir bókanir í sumarhús á Spáni og Englandi klukkan 18 mánudaginn 14. mars næstkomandi. Að þessu sinni verða þrjú hús á Spáni, tvö raðhús og eitt einbýlishús, í boði. Sumarhúsin eru í öll í grennd við Alicante. Þá verður hægt að leigja íbúð í Bournemouth á Englandi.
Frekari upplýsingar um þessar orlofseignir, svo sem leigutíma, ljósmyndir og verð, er að finna á Orlofsvef KÍ.
Opnað verður fyrir sumarbókanir innanlands á tímabilinu 4. til 7. apríl næstkomandi.
Ferðablaðið mun að auki berast félagsmönnum KÍ um eða upp úr komandi helgi.