HA býður mismunandi leiðir fyrir háskólamenntaða starfsmenn leikskóla
Fréttir|30. júní 2014
Kennaradeild Háskólans á Akureyri býður háskólamenntuðum starfsmönnum í leikskólum mismunandi menntunarleiðir eftir bakgrunni þeirra. Tekið verður við umsóknum þeirra sem hafa fullgild lokapróf úr framhaldsskólum og háskólum eitthvað fram eftir sumri svo enn er möguleiki á að skrá sig til náms fyrir komandi haustmisseri.
Námsleiðirnar eru þessar:
- Grunnskólakennarar geta tekið 60 eininga nám í menntavísindum til M.A. gráðu og valið þar um áherslusviðin Sérkennslufræði eða Stjórnun og forysta í samræmi við ákvæði 21. greinarinnar. Þetta nám er eins árs lotubundið nám (má dreifa á lengri tíma) og dugir til þess að fá leyfisbréf sem leikskólakennari. Nánari upplýsingar.
- Grunnskólakennarar geta auðvitað líka tekið hvort heldur er 120 eininga nám til M.Ed. eða M.A. gráðu ef þeir kjósa að fá meistarapróf. Nánari upplýsingar.
- Aðrir háskólamenntaðir (sagnfræðingar, félagsfræðingar, o.s.frv.) með B.A. eða B.S. próf þurfa að taka fullt 120 eininga nám til M.Ed. gráðu.