Gulur, rauður, grænn – eða hvað?

„Þrískipti litakvarðinn byggir á námsviðmiðum þar sem rautt þýðir að nemendur hafa ekki enn náð námsviðmiðum verkefnisins, gult að nemendur hafa náð hluta viðmiðanna og grænt að nemendur hafa náð öllum viðmiðunum.“
Hafsteinn Óskarsson og Sigurrós Erlingsdóttir, kennarar við Menntaskólann við Sund skrifa um Starfendarannsókn um innleiðingu þrískipts litakvarða við mat á nemendaverkefnum, styrkt af Rannsóknasjóði KÍ:
„Menntaskólinn við Sund hefur gengið í gegnum miklar breytingar undanfarinn áratug. Samfara því að fjögurra ára bekkjakerfi hefur verið lagt niður og þriggja anna áfangakerfi tekið upp hefur skólinn verið styttur í þrjú ár. Með þessari kerfisbreytingu hafa yfirlitspróf horfið og í staðinn komið símat í áföngum sem spanna tólf vikur. Við tvö höfum kennt lengi við skólann og höfum þurft að laga kennsluna að breyttu umhverfi. Kennslugreinar okkar eru íslenska og hagfræði. Gildi og viðhorf okkar hafa þróast út frá hugmyndum um leiðsagnarnám.
Þessar hugmyndir koma að gagni til að bregðast við breytingum í skólanum þar sem áhersla er lögð á virkni nemenda í að móta nám sitt og axla ábyrgð á því.
Mat kennara á vinnu nemenda verður að vera upplýsandi, fyrir nemendur og kennara, um næstu skref sem líklegt er að skili árangri í kennslu og námi. Leiðsagnarnám miðar að því að nemendur og kennari velji leiðir sem séu árangursríkari en ef matið hefði ekki farið fram. Markmiðið er að fá nemendur til að skoða mat með það í huga hverju þau hafi áorkað og hvað þau þurfi að gera til að ná lengra. Við höfum einkum stuðst við kenningar Wiliams (2018) um leiðsagnarmat (e. formative assessment) og Hattie og Clarke (2019) um sýnilegt nám og markvissa endurgjöf. Bók Nönnu Kristínar Christiansen (2021) um leiðsagnarnám hefur einnig verið notadrjúg.
Hugmyndin um að gera starfendarannsókn um innleiðingu þrískipts litakvarða (sem við kölluðum fyrst litakóða) í stað einkunna á tíu-skala kviknaði í rýnitali hóps kennara um hvernig mætti fá nemendur til að nýta betur endurgjöf til náms. Samræðurnar þróuðust út í það að vinna saman að mögulegum leiðum. Það samtal leiddi til starfendarannsóknar sem við gerðum skólaárið 2021-2022 byggða kenningum Jean McNiff (2010; 2021). McNiff líkir starfendarannsókn við hringferli þar sem rannsakandi finnur að eitthvað þarf að gera til að bæta starfið, breytir, metur og endurmetur.
Í starfendarannsókn er rannsakandi einnig sá eða sú sem rannsókn beinist að og skoðar eigið starf. Rannsakandi aflar gagna til að styðja við breytingar sem hann gerir. Í starfendarannsókn okkar leituðum við svara við því hvort litakvarði, sem miðast við námsviðmið, myndi stuðla að námsmenningu þar sem nemendur ígrunduðu vinnu sína og vildu gera betur. Við mátum hvernig nemendum gekk að ná námsviðmiðum með áherslu á að endurgjöf sem gæti orðið þeim vegvísir í frekara námi, þ.e. framgjöf. (Guðrún Ragnarsdóttir, dósent við Menntavísindasvið HÍ og ytri ráðgjafi í starfendarannsóknarhópi MS, kenndi okkur orðið framgjöf). Við gerðum rannsókn hvort í sínum áfanga á vetrarönn og í sambærilegum áföngum á vorönn, skólaárið 2021-2022. Gagnaöflun var margvísleg; dagbókarskrif kennara, viðhorfskannanir meðal nemenda og verkefni þeirra. Rannsóknin hefði örugglega reynst erfiðari fyrir einn kennara heldur en í samstarfi og hugmyndir hafa verið útfærðar með mun ítarlegri hætti en ella og stuðningur við að halda út þegar á móti hefur blásið hefur verið mikilvægur. Liðveisla bandamanna okkar sem og félaga í starfendarannsóknarhópnum var dýrmæt og hvatti okkur áfram.
Bæði Wiliam (2018) og Hattie og Clarke (2019) hafa fjallað um hvernig einkunnir geta gert nemendur fráhverfa því að skoða leiðsögn kennara um úrbætur. Einkunnir virðast í hugum nemenda jafngilda því að verki sé lokið. Nemendur virðast líta svo á að um leið og einkunn er fengin sé tilgangslaust að læra meira. Þetta viðhorf dregur úr námsáhuga og því ljóst að þörf er á breytingum. Við höfðum hlustað á kennara í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ sem ekki nota einkunnir, meðal annars Hildi Jónsdóttur spænskukennara sem mat nemendur með rauðum, gulum og grænum lit (með vísun í umferðarljós). Við ákváðum að prófa sambærilega aðferð.
Þrískipti litakvarðinn byggir á námsviðmiðum þar sem rautt þýðir að nemendur hafa ekki enn náð námsviðmiðum verkefnisins, gult að nemendur hafa náð hluta viðmiðanna og grænt að nemendur hafa náð öllum viðmiðunum. Við lögðum áherslu á að vera samstíga í innleiðingu litakvarðans og námsviðmiða í áföngunum og lögðum bæði áherslu á hópvinnu og samvinnunám, með blönduðum nemendahópum, hvort í sínum áfanga. Einnig lögðum við okkur fram við að skapa traust í kennslustofunni. Við einsettum okkur að skrá námsviðmið með verkefnum og að meta hvernig nemendum gekk að ná þessum viðmiðum. Þannig varð mat okkar nákvæmt og markvisst.
Við ætluðum að veita endurgjöf sem yrði nemendum vegvísir í frekara námi, það er, framgjöf.
Rétt er að taka fram að við notum orðið námsviðmið fyrir hugtakið sem fyrrnefndir fræðimenn nefna „success criteria“. Nanna Kristín Christiansen (2021) fjallar um þýðingu enska hugtaksins á íslensku í bók sinni Leiðsagnarnám. Hún nefnir orðin árangursviðmið, námsviðmið og viðmið (sjá bls. 100). Á ráðstefnu samtaka áhugafólks um skólaþróun í Stapaskóla 12. ágúst 2022 kynntu nokkrir kennarar frá Dalskóla, Hamraskóla og Ingunnarskóla (í Grafarvogi í Reykjavík) leiðsagnarmat. Þar var orðið árangursviðmið notað (sjá einnig kennslumyndbönd frá kennurum við þessa og fleiri grunnskóla Reykjavíkur).
Við reyndum að sjá hvort nemendur teldu endurgjöfina efla sig sem námsmenn. Reyndar var ekki spurt beint um það í könnunum en miðað við svör nemenda má draga þá ályktun að nemendur nýti sér endurgjöf vel til þess að ná námsviðmiðum, til að læra betur og til að fá hærri einkunn. Sjá myndir 1 og 2.
Mynd 1. Notfærir þú þér athugasemdir kennara við endurgjöf til að gera betur (til dæmis í næsta verkefni)? Viðhorfskönnun meðal hagfræðinemenda á miðri vorönn.
Mynd 2. Hvers vegna endurvinnur þú verkefni? Viðhorfskönnun meðal hagfræðinemenda á miðri vorönn.
Við rannsókn á gögnum sjáum við að oft skorti matið skýrar leiðbeiningar um það sem nemendur þyrftu að gera til að ná námsviðmiðum. Hér höfum við verk að vinna. Við notuðum oft sýnidæmi eða fyrirmyndarlausnir til að hjálpa nemendum að átta sig á til hvers væri ætlast af þeim. Þessi dæmi sömdum við ýmist sjálf eða fengum leyfi frá nemendum til að nota lausnir þeirra sem sýnidæmi. Nemendur voru ánægðir með ýmsa þætti leiðsagnarnáms, meðal annars fyrirmyndarlausn og að fá námsviðmið með verkefnum, en spenna varð á milli kennara og nemenda um litakvarðann. Við hefðum átt að virkja nemendur meira í verkefnavali, að útbúa námsviðmið og að ræða oftar um námið og tilgang þess. Einn nemandi okkar skrifaði um litakvarðann:
Þrátt fyrir að einhver vísindi segi að þetta eigi að vera gott fyrir nemendur að fá svona lita mat á verkefni eða próf heyrist mér að þetta henti ekki nútímanum og hvað þá á framhaldsskólastigi. Tölurnar eru góðar og hafa hentað vel fyrir námsmat á öllum skólastigum.
Þessi orð sýna okkur að langt er á milli hugmynda okkar um litakvarða og viðhorfa nemenda til einkunna. Þarna skapaðist togstreita á milli kennara og nemenda meðal annars af því að litakvarðinn er ekki í samræmi við meginreglu um einkunnagjöf í skólanum. Nemendur voru óánægðir með litakvarðann en tóku þátt í rannsókn okkar með jákvæðum huga meðal annars með því að svara viðhorfskönnunum tvisvar á önn. Erum við þakklát nemendum fyrir samstarfið við rannsóknina.
Segja má að ekki hafi verið gengið nógu langt í tilraun okkar til að koma á leiðsagnarnámi því þrískipti litakvarðinn er einungis nýr einkunnaskali og hefur því svipuð áhrif á nemendur og einkunnir á tíu-skala hafa. Til að bregðast við þessu stefnum við að því næsta skólaár að skipta hverri kennsluönn í þrjá hluta þar sem verkefni verða metin án einkunna en með leiðbeinandi endurgjöf. Í lok hvers hluta munum við meta stöðu nemenda til einkunnar á tíu-skala út frá þeirri vinnu sem komin er. Við hugsum okkur að gera starfendarannsókn á þessari breytingu.
Fyrir rúmu ári þegar hugmyndin að þessari rannsókn var að verða til var Þóra Víkingsdóttir, (fædd 29.4.1958 -dáin 31.5.2021), líffræðikennari við Menntaskólann við Sund, með okkur. Þóra og Sigurrós sóttu um styrk til Rannsóknasjóðs KÍ og fengu jákvætt svar. Þóra lést áður en til þess kom að nýta styrkinn en lifandi áhugi hennar á að finna leiðir til að bæta skólastarf fyrir nemendur hefur fylgt okkur. Við erum þakklát fyrir samstarfið við Þóru Víkingsdóttur. Við þökkum Rannsóknasjóði KÍ fyrir styrkinn og að auðvelda okkur þar með að gera þessa rannsókn að veruleika.“
Hafsteinn Óskarsson og Sigurrós Erlingsdóttir, kennarar við Menntaskólann við Sund.

Heimildir:
Hafþór Guðjónsson. (2020). Rýnital og kynningartal. Skólaþræðir. Samtök áhugamanna um skólaþróun. Sótt af https://skolathraedir.is/2020/10/02/rynital-og-kynningartal/
Hattie, J. og Clarke, S. (2019). Visible learning: Feedback. Routledge.
Leiðsagnarnám. (2017-2019). Heimasíða tengd þróunarverkefni í grunnskólum Reykjavíkur um innleiðingu leiðsagnarnáms. https://nammedleidsogn.wordpress.com/
McNiff, J. (2010). Action Research for Professional Development. Concise adwise for new (and experienced) action researchers. September Books.
McNiff. (2021). Booklet. Jeanmcniff.com. https://www.jeanmcniff.com/ar-booklet.asp
Nanna Kristín Christiansen. (2021). Leiðsagnarnám. Hvers vegna, hvernig, hvað? Nanna Kristín Christiansen.
Björg Hrund Sigurbjörnsdóttir, Erla María Markúsdóttir, Hulda Óskarsdóttir, Sigríður Schram og Þuríður Jóna Ágústsdóttir. (2022). Leiðsagnarnám er komið til að vera. Með gleðina að leiðarljósi. Ráðstefna áhugafólks um skólaþróun, haldin í Stapaskóla, 12. ágúst. Óbirt erindi.
Wiliam, D. (2018). Embedded formative assessment. Solution Tree Press.