Gullnar reglur menntunar

Prófessorinn og sálfræðingurinn Sue Roffey þróaði kerfið ASPIRE með þarfir barna og samfélagsins í heild í huga. Farsæld og tilgangur menntunar eru í brennidepli í kenningum Roffey, sem hefur lagt áherslu á jákvæða sálfræði í rannsóknum sínum og störfum.
Skólavarðan náði tali af Roffey þegar hún var stödd hérlendis í byrjun árs að flytja erindi á ráðstefnu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Menntun og farsæld barna í skóla- og frístundastarfi. Þar fjallaði hún um sex reglna kerfi sem hún hefur þróað í áratug undir griplunni ASPIRE.
Ótrautt í átt að farsæld og vellíðan
Markmiðið með kerfinu er að efla heilsu, vellíðan og menntun í þágu allra. Því hyggst Sue Roffey ná með því að hafa þarfir bæði barnanna og samfélagsins í heild ávallt í forgrunni þegar menntun og nám eru annars vegar. Áherslan er lögð á heildina – samfélagið – og velgengni „okkar“ í stað þess að einblína á einstaklinginn – eða „mig“ og velgengni „mína“.
Samfélagið þarf þegna sem eru heilir heilsu, líkamlega og andlega, og eiga í góðum og styrkum tengslum við aðra, eru samfélagsþenkjandi, upplýstir og virkir. Allt þarf að taka mið af því; námið og menntunin, kennslu- og uppeldisfræðin og námsumhverfið. Börnum þarf að leyfast að vera forvitin, virk og spennt fyrir umhverfi sínu, eins og þeim er eðlislægt. Námið þarf að vera ánægjulegt, þýðingarmikið og hagnýtt og mæta þarf börnunum þar sem þau eru.
Kerfi Sue Roffey er hannað með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi, fremstu rannsóknir og kenningar varðandi heilbrigt uppeldi og þroska barna, jákvæða sálfræði og vellíðan og farsæld í menntun. Roffey segir að þegar sex reglur, eða gildi, kerfisins séu hafðar að leiðarljósi í allri menntun, frá leikskóla og upp úr, aukist líkurnar á að ná markmiðinu um árangur og vellíðan í þágu allra umtalsvert.
Atbeini
Sjálfsákvörðunarréttur er hornsteinn vellíðunar. Fyrsta reglan, eða gildi griplunnar ASPIRE, agency, eða atbeini eða fulltingi á íslensku, tekur mið af því. Með hugtakinu á Roffey við að menntun og nám nemenda verði að vera á þeirra forsendum og drifið áfram af innri hvötum, ekki ytri, eins og til dæmis einkunnum og þeirri viðurkenningu sem fæst frá foreldrum og kennurum gangi vel.
Þessu markmiði er til dæmis hægt að ná með því að virkja og næra innri hvata barnanna, segir Roffey. Virkja viljann og áhugann á að læra, kanna, skilja og skoða, sem er þegar til staðar. „Börn eru ekki tóm ílát sem þarf að fylla, þau eru hugmyndarík, lærdómsfús og forvitin og vilja hafa áhrif.“
Komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig. Þessi forna gullna regla, sem hægt er að rekja til hinna ýmsu trúarbragða, á jafn vel við í dag og áður.
Þá þarf námið að vera hagnýtt og virkt. Börnin þurfa að sjá tilganginn með því að læra, hvernig námið á við um þeirra líf og hvernig það kemur þeim að notum. Þau þurfa að fá að læra til að læra, það er að segja, hvatinn þarf að vera til dæmis áhugi, tilgangur, þýðing, leikni, færni og svo framvegis.
Gæta þarf að því að nemendur séu ávallt hafðir með í ráðum. Þegar mál varða þau þarf sannanlega að ráðfæra sig við þau og hlusta, líka þótt það sé alls ekki alltaf hægt að verða við þeirra óskum og athugasemdum. Allir innan skóla verða að hafa rödd og tækifæri til að láta hana í ljós.
Hér vitnar Roffey í skýrslu OECD frá 2019 þar sem segir: Atbeini nemenda „snýst um að framkvæma í staðinn fyrir að vera gert að framkvæma; að mótast í stað þess að vera mótaður; að velja og taka ábyrgar ákvarðanir, en ekki gangast við því sem þegar hefur verið ákveðið fyrir mann“.
Öryggi
Essið, annar stafur griplunnar, stendur fyrir safety, eða öryggi í víðu samhengi; félagslegt, tilfinningalegt, líkamlegt og stafrænt.
Roffey vill meina að hægt sé að tryggja öryggi í skólum með því að láta nemendur fást við verkefni sem eru til þess fallin að auka á samkennd, umburðarlyndi og stuðla að félags- og tilfinningalegum þroska. Slík verkefni gefa einnig nemendum og starfsfólki gott tækifæri til að kynnast hvert öðru í jákvæðu umhverfi og byggja og rækta heilbrigð og traust sambönd.
Liður í þessu er einnig að draga úr samkeppni hvað varðar ytri hvata, eins og mikilvægi „góðra“ einkunna eða samkeppni á milli nemenda, og einblína heldur á samvinnunám (e. cooperative learning) og persónulegan árangur. Það er til dæmis hægt að gera með því að spyrja spurninga eins og: Hvað finnst þér um verkefnaskilin þín? Hvað langar þig að gera betur næst? Hvaða árangri vilt þú ná? Hvernig heldur þú að þú getir komist þangað?
Þá er mikilvægt að nemendur upplifi að þeir séu í nægilega öruggu umhverfi til að geta tekið áhættur og gert mistök. Þannig þurfa kennarar og skólafólk að sjá og virða gildi villna og þess sem betur mætti fara og líta á mistök sem skref í átt að lærdómi og skilningi. Í öruggu umhverfi hafa allir virði.
Jákvæðni
Þá er komið að þriðja stafnum, P, sem stendur fyrir positivity, eða jákvæðni. Orð hafa áhrif og þeim fylgir ábyrgð. Það sem við segjum við aðra getur átt þátt í að móta sjálfsmynd þeirra. Það sem við segjum um aðra getur litað og haft áhrif á það hvernig aðrir sjá og taka viðkomandi. Til dæmis getur það að tala illa um nemenda á kaffistofunni haft áhrif á hvernig aðrir kennarar og starfsfólk upplifa, og þar af leiðandi, koma fram við viðkomandi. Andstæðan er líka sönn. Það sem við ákveðum að segja, eða segja ekki, og hvenær við ákveðum að láta í okkur heyra, getur haft áhrif og knúið fram jákvæðar breytingar.
Hægt er að sýna jákvæðni í verki í skólanum með því að viðhafa gildi á borð við góðvild, þakklæti, fyrirgefningu, hluttekningu og stuðning í samskiptum. Að upplifa að maður hafi virði eykur á viljann til samvinnu. Að upplifa öryggi eykur á skilning og samhyggð gagnvart öðrum. Að upplifa virðingu eykur líkurnar á að maður sýni öðrum virðingu og þar með líkurnar á hlustun. Og svo koll af kolli.

Atbeini nemenda snýst um að framkvæma í staðinn fyrir að vera gert að framkvæma; að mótast í stað þess að vera mótaður; að velja og taka ábyrgar ákvarðanir, en ekki gangast við því sem þegar hefur verið ákveðið fyrir mann.
Inngilding og virðing
Þá að I-inu, inclusion, eða inngildingu. Upplifuninni að tilheyra, skipta máli og vera meðtekinn; séður og heyrður, sem Sue Roffey segir einn stærsta þátt vellíðunar og farsældar.
Allt skólafólk og hlutaðeigandi; starfsfólk, kennarar, stjórnendur, nemendur, fjölskyldur þeirra og samfélagið á að fá að upplifa að það tilheyri, að það skipti máli og að framlag þeirra hafi þýðingu og virði. Það krefst umburðarlyndis og móttækileika, viðurkenningar á gildi og mikilvægi fjölbreytileikans og því að við séum öll einstök og engir tveir eins. Ekki síst krefst það virðingar, en hér kemur errið – respect, eða virðing, inn í jöfnuna.
Jöfnuður
Svo að lokastafnum, E-inu, equality, eða jöfnuði. Jöfnuður – þar sem réttlæti mætir sveigjanleika – er undirstaða félagslegrar farsældar, segir Sue Rofffey. Ein stærð, ein leið hentar ekki öllum. Það þarf að vera í forgrunni þegar á að tryggja allir geti setið jafnir við sama borð.
Hver nemandi er einstakur, hefur mismunandi persónuleika, styrkleika, reynslu, bakgrunn og þarfir. Það er fullkomið fyrir samfélag sem krefst fjölbreytileika, til dæmis þegar kemur að vinnumarkaði. Forsenda þess að halda samfélaginu gangandi er að ná að manna öll ólíku störfin og stöðurnar. Öll hlutverkin eru mikilvæg og allir eiga að fá að geta upplifað það.
Skólar skipta máli og kennarar hafa áhrif
Hlutverk kennarans breytist og mótast í takt við síbreytilegan heim, segir Roffey. Á öld þar sem nemendur hafa greitt aðgengi að þekkingu öllum stundum þurfa kennarar ekki að vera viskubrunnar sem öllu geta svarað, heldur leiðbeinendur. Þeir þurfa að geta frætt nemendur um hvernig þeir afla sér traustrar þekkingar; hvernig þeir nýta gagnrýna hugsun, greina staðreyndir frá rangfærslum, aðalatriði frá aukaatriðum, meta heimildir og rannsóknir og hvernig þeir beita svo þekkingunni.
En þótt kennarastarfið kalli á nýjar nálganir helst mikilvægi starfsins ávallt. Ekki síst hvað varðar veigamikið hlutverk kennarans við að mynda og byggja upp sambönd við nemendur, en heilbrigð og góð tengsl eru ein stærsta forsenda vellíðunar og lífsgæða, segir Roffey að lokum.
