Guðríður Arnardóttir kjörin formaður FF

Fréttir|7. febrúar 2014

Guðríður Arnardóttir hefur verið kjörin nýr formaður Félags framhaldsskólakennara. Hún hlaut 575 atkvæði (tæp 45%), en 1282 tóku þátt í kosningunni. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson hlaut næst flest atkvæði, 456 eða tæp 36% og Gylfi Þorkelsson hlaut 218 atkvæði eða rúm 17%.
Auðir seðlar voru 31 og ógildir 2.

Guðríður hefur starfað sem kennari við Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Hún hefur setið í bæjarstjórn Kópavogs síðustu ár.

Í stjórn FF voru kjörnir Reynir Þór Eggertsson, Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, Kjartan Þór Ragnarsson og Guðný Lára Petersen. Í varastjórn FF voru kjörnir Elías Þorsteinsson, Sigríður Ragna Birgisdóttir og Helga Helena Sturlaugsdóttir

Kosningin fór fram skriflega meðal félagsmanna FF dagana 22. – 31. janúar 2014. Atkvæði voru talin í dag. Nýr formaður og stjórn taka við á aðalfundi Félags framhaldsskólakennara sem fram fer 20. – 21. mars næstkomandi. Aðalheiður Steingrímsdóttir, núverandi formaður Félags framhaldsskólakennara, gaf ekki kost á sér í kjörinu.