Guðjón Ragnar dregur framboð sitt til baka

Fréttir|30. nóvember 2021

Guðjón Ragnar Jónasson hefur dregið framboð sitt til varaformanns KÍ til baka.

Guðjón Ragnar Jónasson framhaldsskólakennari hefur ákveðið að hætta við framboð sitt til varaformanns Kennarasambandsins. 

Guðjón Ragnar tilkynnti ákvörðun sína í bréfi til framboðsnefndar KÍ fyrr í kvöld. 

Guðjón Ragnar óskar öðrum frambjóðendum góðs gengis.