Guðjón Hreinn: Stefnumál og áherslur

Fréttir|9. september 2019

Guðjón Hreinn Hauksson er í framboði til formanns FF.

Formannskosningar hjá Félagi framhaldsskólakennara hefjast 17. september og standa til 23. september. Í framboði eru Guðjón Hreinn Hauksson, starfandi formaður FF og framhaldsskólakennari í Menntaskólanum á Akureyri, og Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, framhaldsskólakennari í Fjölbrautaskólanum Garðabæ.

Kosningarnar verða rafrænar og fara fram á Mínum síðum.

  • Kosning hefst: Klukkan 12 þriðjudaginn 17. september
  • Kosningu lýkur: Klukkan 14 mánudaginn 23. september.

    Kjörtímabil hins nýja formanns er frá næstu mánaðamótum til næsta reglulega aðalfundar Félags framhaldsskólakennara árið 2022.

Minnum á opinn framboðsfund í Gerðubergi klukkan 20 miðvikudaginn 11. september. Fundurinn verður í beinni útsendingu á vef Netsamfélagsins.