Guðjón Hreinn og Kjartan Þór bjóða sig fram til formanns FF

Tveir bjóða sig fram til formennsku í Félagi framhaldsskólakennara; Guðjón Hreinn Hauksson, núverandi formaður FF, og Kjartan Þór Ragnarsson, kennari í MR. Þrettán bjóða sig fram til setu í stjórn FF.
Formanns- og stjórnarkjör fer fram í Félagi framhaldsskólakennara í byrjun maí. Frestur til að bjóða sig fram rann út á miðnætti í gær.
Núverandi formaður FF, Guðjón Hreinn Hauksson, gefur kost á sér til endurkjörs og einnig Kjartan Þór Ragnarsson, kennari í Menntaskólanum í Reykjavík.
Þrettán bjóða sig fram til stjórnar FF. Þau eru í stafrófsröð:
- Baldvin Björgvinsson, Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
- Guðmundur Arnar Guðmundsson, Verkmenntaskóla Austurlands
- Guðmundur Björgvin Gylfason, Fjölbrautaskóla Suðurlands
- Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
- Heimir Björnsson, Flensborgaskólanum í Hafnarfirði
- Helga Jóhanna Baldursdóttir, Tækniskólanum
- Jóhanna Björk Guðjónsdóttir, Kvennaskólanum í Reykjavík
- Óli Njáll Ingólfsson, Verzlunarskóla Íslands
- Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Borgarholtsskóla
- Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir, Menntaskólanum við Sund
- Simon Cramer Larsen, Fjölbrautaskóla Suðurnesja
- Sólveig Ebba Ólafsdóttir, Menntaskólanum í Kópavogi
- Steindóra Kristín Þorleifsdóttir, Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ
Auk formanns verða kosnir fjórir aðalmenn og þrír varamenn í stjórn FF. Atkvæðagreiðsla fer fram dagana 2. til 6. maí 2022.
Frambjóðendur munu kynna sig og stefnumál sín á næstunni og þá er fyrirhugað að halda opinn kynningarfund í lok apríl.