Guðjón Hreinn endurkjörinn formaður FF

Fréttir|29. janúar 2026

Úrslit í formanns- og stjórnarkjöri Félags framhaldsskólakennara liggja fyrir.

Guðjón Hreinn Hauksson verður formaður Félags framhaldsskólakennara á næsta kjörtímabili, 2026 til 2030.

Tveir voru í framboði til formanns FF, Guðjón Hreinn Hauksson, núverandi formaður FF, og Simon Cramer Larsen, formaður skólamálanefndar FF og dönskukennari við FÁ.

Þá var kosið um fjögur sæti í stjórn, og þrjú í varastjórn FF, til næstu fjögurra ára. Ellefu félagar í FF gáfu kost á sér til stjórnarsetu. 

Niðurstaða í formannskjöri FF

  • Guðjón Hreinn Hauksson hlaut 669 atkvæði, eða 60,54%.
  • Simon Cramer Larsen hlaut 385 atkvæði eða 34,84%
  • Auðir seðlar voru 51 eða 4,62%
  • Á kjörskrá voru 1.795
  • Alls greiddu 1.105 atkvæði eða 61,56%.

Niðurstaða í stjórnarkjöri FF

Aðalfulltrúar

  1. sæti Sólrún Gísladóttir, 507 atkvæði
  2. sæti Guðmundur Björgvin Gylfason, 417 atkvæði
  3. sæti Björn Gísli Erlingsson, 399 atkvæði
  4. sæti Simon Cramer Larsen, 397 atkvæði

Varafulltrúar

  1. varafulltrúi Jóhanna Björk Guðjónsdóttir, 349 atkvæði
  2. varafulltrúi Sandra Hlín Guðmundsdóttir, 339 atkvæði
  3. varafulltrúi Anna Jóna Guðmundsdóttir, 303 atkvæði

 

  • Auðir seðlar voru 58
  • Á kjörskrá voru 1.795 
  • Atkvæði greiddu 980 eða 54,60%

 

Kosningarnar hófust klukkan 10 að morgni síðasta mánudag, 26. janúar, og lauk klukkan 10 í morgun, fimmtudaginn 29. janúar. Atkvæðagreiðslan var rafræn og fór fram á Mínum síðum á vef KÍ.