Grunnskólar verðlaunaðir á öskudegi

Fréttir|27. febrúar 2020

Foldaskóli, Seljaskóli og Ölduselsskóli fengu hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs.

Foldaskóli, Seljaskóli og Ölduselsskóli fengu hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs í gær. Verðlaunað er fyrir nýbreytni í skólastarfi og grósku í faglegu starfi. 

Að auki fengu Ártúnsskóli, Breiðholtsskóli, Fellaskóli og Hólabrekkuskóli viðurkenningu fyrir metnaðarfull þróunarverkefni. 

Um sex hundruð manns sóttu Öskudagsráðstefnu grunnskólakennara í Hörpu í gær en þar var fjallað um loftslagsvandann, sjálfbærni, útinám og leiðir til að vinna með loftslagskvíða. 

Hvatningarverðlaunin voru afhent á ráðstefnunni og hlutu þrír skóla verðlaun. 

Foldaskóli

Hlaut hvatningarverðlaun fyrir að skapa aðstæður fyrir nemendur sem eru virkir í tómstundastarfi til að spila ævintýraleikinn Dungeons and Dragons. Leikurinn fellur vel að námsmarkmiðum í íslensku og samfélagsfræði og eflir félagsfærni, leikræna tjáningu og samskiptahæfni út frá áhugahvöt og frumkvæði nemenda.

Seljaskóli

Hlaut verðlaun fyrir verkefnið Bangsa-gistipartý og Bókaskjóður á skólabókasafninu. Dröfn Vilhjálmsdóttir bókasafnsfræðingur á heiðurinn af því skemmtilega verkefni en hún hefur farið óhefðbundnar leiðir að því að efla yndislestur. Yngri nemendum var boðið að koma með bangsana sína í gistipartý á skólasafninu þar sem bangsarnir upplifðu ýmislegt sem var skráð og myndað. Dröfn hefur einnig útbúið 40 veglegar bókaskjóður með bókum og fylgihlutum með það að markmiði að efla lestraráhuga og orðaforða nemenda.

Ölduselsskóli

Fékk hvatningarverðlaun fyrir verkefnið Símalaus skóli, en hann er fyrsti skólinn í borginni sem náði því markmiði. Í umsögn dómnefndar segir m.a. að allt skólasamfélagið hafi sameinast um að gera Ölduselsskóla að símalausum skóla og hafi nemendur verið virkjaðir í að finna áhugaverð og skemmtileg viðfangsefni í staðinn fyrir að vera í símunum í frímínútum.

Að auki fengu eftirtaldir skólar viðurkenningu: Ártúnsskóli fyrir verkefnið Útinám og umhverfisfræðsla og Breiðholtsskóli, Fellaskóli og Hólabrekkuskóli fyrir samstarfsverkefnið Allir brosa á sama tungumáli.

 

Frétt um verðlaunin á vef Reykjavíkurborgar