Grunnskólakennarar samþykktu nýjan kjarasamning
Fréttir|12. desember 2016

Meirihluti félagsmanna í Félagi grunnskólakennara samþykkti nýgerðan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga í atkvæðagreiðslu sem hófst mánudaginn 5. desember og lauk klukkan 16:00 í dag. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar var eftirfarandi:
Á kjörskrá:
4.521
Atkvæði greiddu:
4.100
90,69%
Já:
2.260
55,12%
Nei:
1.759
42,90%
Auðir:
81
1,98%
Skrifað var undir samninginn í húsakynnum ríkissáttasemjara 29. nóvember síðastliðinn og gildir hann frá 1. desember 2016 til 30. nóvember 2017.