Grunnskólakennarar samþykkja nýjan samning

Fréttir|18. mars 2022

Rúmlega 60% sögðu já

Félagar í Félagi grunnskólakennara hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Atkvæðagreiðsla hófst þriðjudaginn 15. mars og lauk klukkan tíu í dag.

Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er svohljóðandi:

Á kjörskrá voru 5.170

Atkvæði greiddu 3.610 eða 69,83%

Já sögðu 2.254 eða 62,44%

Nei sögðu 1.161 eða 32,16%

Auðir voru 195 eða 5,40%

 

Kjarasamningur Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga var undiritaður í Karphúsinu, húsi ríkissáttasemjara,  10. mars síðastliðinn.

Gildistími hins nýja kjarasamnings er 1. janúar 2022 til 31. mars 2023.