Grunnskólakennarar samþykkja nýjan kjarasamning

Fréttir|23. október 2020

Úrslit í atkvæðagreiðslu um kjarasamning FG liggja fyrir.

Félagar í Félagi grunnskólakennara hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Atkvæðagreiðsla hófst föstudaginn 16. október og lauk klukkan ellefu í dag.

Úrslit atkvæðagreiðslunnar eru svohljóðandi:

  • Á kjörskrá voru 5.305
  • Atkvæði greiddu 3.642 eða 68,65%
  • Já sögðu 2.667 eða 73,23%
  • Nei sögðu 913 eða 25,07%
  • Auðir voru 62 eða 1,70%

 

Kjarasamningur Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga var undiritaður í Karphúsinu, húsi ríkissáttasemjara,  að kvöldi 7. október síðastliðinn.

Gildistími hins nýja samnings er frá 1. september 2020 til 31. desember 2021.