Grunnskólakennarar samþykkja kjarasamning

Fréttir|30. maí 2014

Félagsmenn í Félagi grunnskólakennara hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Samningurinn var undirritaður 20. maí síðastliðinn. Allsherjaratkvæðagreiðslu um samninginn lauk klukkan 13 í dag. 

Úrslit voru sem hér segir: 

  • Á kjörskrá voru: 4.406 
  • Atkvæði greiddu: 3.153 eða 71,56%
  • Já sögðu: 2.064 eða 65.46%
  • Nei sögðu 1.017 eða 32.26%
  • Auðir: 72 eða 2,28%