Grunnskólakennarar og Samband íslenskra sveitarfélaga undirrita nýjan kjarasamning
Fréttir|10. mars 2022

Félag grunnskólakennara og samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga skrifuðu snemma í morgun undir nýjan kjarasamning.
Nýr kjarasamningur Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga var undirritaður hjá embætti ríkissáttasemjara snemma í morgun. Gildistími hins nýja kjarasamnings er 1. janúar 2022 til 31. mars 2023.
Nýr kjarasamningur fer nú í kynningu meðal félagsmanna Félags grunnskólakennara og hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, en niðurstaða atkvæðagreiðslu um samninginn mun liggja fyrir þann 18. mars 2022. Kynningarfundir FG verða auglýstir síðar ásamt upplýsingum um atkvæðagreiðsluna.