Grunnskólakennarar greiða atkvæði um nýjan kjarasamning
Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga hefst klukkan 16 í dag, fimmtudaginn 2. júní og lýkur klukkan 16 fimmtudaginn 9. júní 2016. Atkvæðagreiðslan er rafræn.
Skrifað var undir hinn nýja kjarasamning að kvöldi mánudagsins 30. maí síðastliðinn. Gildistími samningsins er frá 1. júní 2016 til 31. mars 2019.
Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í FG sem starfa hjá sveitarfélögum landsins. Þeir sem hafa ekki rétt til að taka þátt í kosningunni eru félagsmenn í launalausu leyfi, félagsmenn með beina félagsaðild að KÍ, félagsmenn sem þiggja atvinnuleysisbætur og starfsfólk Kennarasambands Íslands.
Atkvæðagreiðslan
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum vef Kennarasambandsins. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist flipi sem heitir Kosningar. Smellið á kosninguna sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FG 2016 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði skal smella á: Hætta við kosningu.
Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki atkvæðaseðil skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar sem athugar málið. Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir (fjola@ki.is).
Vakin er athygli á að kynningarefni um nýjan kjarasamning má finna hér: