Grunnskólakennara dæmdar átta milljónir

Fréttir|17. febrúar 2022

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur fellt dóm í máli grunnskólakennara gegn Dalvíkurbyggð. Fyrirvaralaus brottrekstur kennarans úr starfi á sér ekki lagastoð að mati héraðsdóms.

Grunnskólakennari vann mál gegn Dalvíkurbyggð en Héraðsdómur Norðurlands eystra felldi dóm þess efnis í morgun. Kennarinn höfðaði mál vegna ólögmæts brotrekstrar i kjölfar þess að kennarinn brást við kinnhesti frá nemanda með því að gefa kinnhest til baka.

Samkennarar lýsa áhyggjum

Daginn eftir umrætt atvik hélt skólastjóri fund með kennaranum og deildarstjóra þar sem málið var rætt. Tæpri viku síðar lagði sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs til að kennarinn færi í launað leyfi þar sem málið hefði verið kært til lögreglu. Málið var síðar fellt niður hjá lögreglu.

Kennaranum var ekki boðið í lokateiti skólans í byrjun júní sem sætti mótmælum samkennara sem upplifðu sem búið væri að ákveða brottrekstur. Um viku síðar var kennarinn boðaður til fundar og í boðsbréfinu var tilgreint að ræða skuli þær greinar kjarasamnings Félags grunnskólakennara sem varða áminningar og fyrirvaralausa brottvikningu. Félag grunnskólakennara var á þessu stigi komið að málinu og á sama tíma skrifuðu um 20 kennarar og starfsfólk við skólann bréf til bæjaryfirvalda þar sem þau lýstu því að bragur Dalvíkurskóla hefði versnað og „þau hefðu ítrekað bent á erfiðleika í skólastarfinu og mætt daufum eyrum stjórnenda“.

Kennaranum var gefinn kostur á að skila andmælum en bæjaryfirvöld töldu brotið gróft. Í millitíðinni skrifaði starfsfólk skólans annað bréf vegna „yfirvofandi brottrekstrar“ kennarans og „taka fram að þau upplifi brottreksturinn sem staðfestingu á að agaleysi nemenda muni líðast áfram og gefa tilefni til að það muni enn versna frá því sem nú væri“.

Kennarinn skilaði andmælum 30. júní og viku síðar var honum tilkynnt um fyrirvaralausa uppsögn.

Uppsögnin ólögmæt

Ágreiningur málsins snýr að því hvort uppsögn kennarans hafi verið lögmæt og hvort kinnhestur sá er kennarinn veitti nemanda hafi átt að leiða til áminningar eða fyrirvaralausrar uppsagnar.

Dómurinn fer í inngangi yfir að ófremdarástand hafi verið í rekstri og stjórnun Dalvíkurskóla enda kom fram í málinu að kennarar upplifðu valda- og öryggisleysis í störfum sínum og að skólayfirvöld og skólastjóri skapi ekki öruggt umhverfi og skilji þá eftir varnalausa fyrir hverskyns ofbeldi.

Dómurinn telur að atvikið sé ekki gróft brot í starfi þannig að það réttlæti fyrirvaralausan brottrekstur. Bæjaryfirvöld hafi ekki mótmælt því að starfsferill kennarans hafi verið flekklaus og ekki hafi verið sýnt fram á að viðvera kennarans á vinnustað myndi valda skaða fyrir starfsemi skólans.

Niðurstaða dómsins er afgerandi um að brottreksturinn var ólögmætur og brotalamir hafi verið á ferli málsins af hálfu bæjaryfirvalda. Jafnframt telur dómurinn að miski kennarans sé verulegur.

Í dómsorðinu segir að ekki verði litið fram hjá því að kennarinn var starfsmaður bæjarfélagsins sem hvorki „gætti hagsmuna [hans] né sýndi [honum] stuðning, svo sem stefnda bar að gera sem vinnuveitenda“. Þá hafi kennarinn ekki fengið leiðbeiningar um að taka einhvern með sér á fundi vegna málsins en það er til þess fallið að auka á yfirburðastöðu skólastjóra Dalvíkurskóla.

Kennaranum eru, sem fyrr segir, dæmdar átta milljónir króna, sex vegna fjártjóns og tvær vegna miska. Þá er Dalvíkurbyggð gert að greiða 1,2 milljón í málskostnað.

Karl Óttar Pétursson, lögmaður Félags grunnskólakennara, flutti málið fyrir hönd kennarans. 

 

Fréttin var uppfærð 23. febrúar 2022.