Grímuskylda getur átt við í skólastarfi

Komi upp aðstæður í framhaldsskólum þar sem ekki er hægt að hafa eins metra nándarreglu skal nota andlitsgrímu. Stjórnendum leikskóla er heimilt að krefja foreldra að nota andlitsgrímur á aðlögunartíma. Þetta er meðal þess sem kemur fram í reglugerð heilbrigðisráðherra.
Leikskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum að þeim skilyrðum uppfylltum að starfsfólk sem á erindi inn í skólabyggingar gæti að minnst 1 metra nálægðartakmörkun sín á milli án þess að andlitsgrímur séu notaðar. Að öðru leyti eru ekki takmarkanir á samkomum barna á leikskólaaldri.“
Svo hljóðar upphaf 3. greinar auglýsingar heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólahaldi vegna COVID-19.
Þar segir jafnframt að leikskólastjóra geti krafist þess að foreldrar noti andlitsgrímu á meðan börn þeirra eru í aðlögun. Tveggja metra reglan skal í hávegum höfð fyrir aðra en starfsmenn og foreldra. Þá skulu gerðar ráðstafanir til að sótthreinsa byggingar eftir hvern dag.
Grunnskólinn
Grunnskólum er heimilt að halda uppi skólastarfi í byggingum að þeim skilyrðum uppfylltum að starfsfólk gæti að eins metra nándarreglu og þarf þá ekki að nota grímu. Að öðru leyti eru ekki takmarkanir á samkomum barna á grunnskólaaldri.
Aðrir en starfsmenn og foreldrar sem koma inn í grunnskóla, svo sem vegna vöruflutninga, skulu gæta að 2 metra nálægðartakmörkun. Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa eða sótthreinsa byggingar eftir hvern dag,“ segir orðrétt í auglýsingu ráðherra.
Framhaldsskólinn
Eins metra reglan skal gilda í framhaldsskólum; meðal starfsfólks og nemenda. Við aðstæður þar sem eins metra reglu verður ekki komið við, svo sem í verknámi, skal nota andlitsgrímu og er þá átt við kennara jafnt sem nemendur.
Þá segir í reglugerðinni að skipuleggja skuli starf í framhaldsskólum þannig að hver nemandi umgangist sem fæsta einstaklinga og mælst er til þess að nemendum sé dreift á fasta innganga ef kostur er. Viðburðir sem ekki teljast til kennslu skulu ekki fara fram í skólabyggingum.
Snertingar eru þó heimilar í íþróttakennslu en virðast skal eins metra regluna í búningsklefum. Þá skulu kennslustofur sótthreinsaðar milli nemendahópa, sameiginlegur búnaður skal sótthreinsaður daglega og jafnframt skal leggja áherslu á einstaklingsbundnar sóttvarnir.
Þessar takmarkanir á skólastarfi gilda til miðnættis 29. september 2020.