Grimmdarverkin á Gaza verði stöðvuð og friður tryggður

Kennarasamband Íslands krefst þess að hernaðaraðgerðum á Gaza verði tafarlaust hætt og friður tryggður. Auk þess að réttur barna til menntunar, öryggis og mannsæmandi lífs verði virtur og tryggður án tafar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem stjórn KÍ sendi frá sér síðdegis.
Stjórn Kennarasambands Íslands krefst þess að íslensk stjórnvöld beiti sér með öllum tiltækum ráðum fyrir því að grimmdarverk gegn borgurum á Gaza verði stöðvuð og friður tryggður. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem stjórn KÍ sendi frá sér síðdegis í dag. Þar er þess jafnframt krafist að stjórnvöld hérlendis taki afdráttarlausa og skýra afstöðu á alþjóðavettvangi með réttindum barna í Palestínu.
„Þegar hernaðarátök beinast gegn skólum og börnum er ráðist gegn framtíð mannkyns og brotið gegn alþjóðalögum, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og siðferðiskennd heimsins," segir jafnframt í ályktuninni.
Ályktun stjórnar KÍ vegna grimmdarverka á Gaza
Stjórn Kennarasambands Íslands lýsir yfir djúpstæðum áhyggjum vegna ástandsins á Gaza og fordæmir harðlega þau grimmdarverk sem Ísraelsher fremur gegn óbreyttum borgurum á Gaza – ekki síst börnum og fjölskyldum þeirra. Skólar hafa verið eyðilagðir, kennarar myrtir, börnum kerfisbundið meinað að sækja nám og framtíð heillar kynslóðar tekin frá henni.
Kennarasamband Íslands ítrekar að menntun er grundvallarmannréttindi og forsenda þess að börn geti lifað mannsæmandi lífi og tekið virkan þátt í samfélagi sínu. Þegar hernaðarátök beinast gegn skólum og börnum er ráðist gegn framtíð mannkyns og brotið gegn alþjóðalögum, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og siðferðiskennd heimsins.
Kennarasamband Íslands krefst þess:
- Að hernaðaraðgerðum á Gaza verði tafarlaust hætt og friður tryggður.
- Að réttur barna til menntunar, öryggis og mannsæmandi lífs verði virtur og tryggður án tafar.
- Að íslensk stjórnvöld taki afdráttarlausa og skýra afstöðu á alþjóðavettvangi með réttindum barna í Palestínu.
- Að börnum á flótta frá átakasvæðum verði tryggð menntun og nauðsynlegur stuðningur.
- Að ísraelsk stjórnvöld tryggi alþjóðlegum mannúðarsamtökum óheftan aðgang að Gaza til að veita brýna neyðaraðstoð, flytja matvæli inn á svæðið og vinna gegn þeirri skelfilegu hungursneyð sem þar ríkir.
Kennarasamband Íslands hefur á vettvangi Alþjóðasamtaka kennara lýst afdráttarlausri afstöðu sinni og mun áfram beita sér fyrir stöðvun þessara grimmdarverka. Kennarasambandið gerir þá kröfu til íslenskra stjórnvalda að þau beiti sér með öllum tiltækum ráðum fyrir því að grimmdarverkin verði stöðvuð og friður tryggður.
2. september 2025
Stjórn Kennarasambands Íslands
Fjöldafundir á sex stöðum um landið á laugardag
Heildarsamtök launafólks, verkalýðsfélög, mannúðarsamtök, fagfélög og fjöldi annarra samtaka efna til mómælafunda í Reykjavík og á landsbyggðinni, laugardaginn 6. september.
Fundað verður á Austurvelli í Reykjavík, Akureyri, Húsavík, Ísafirði, Egilsstöðum og í Stykkishólmi. Fundirnir hefjast klukkan 14.
Alls hafa yfir 160 samtök skráð sig til þátttöku á fundunum og er Kennarasamband Íslands þar á meðal. Félagsfólk er hvatt til að mæta á fundina og sýna palestínsku þjóðinni samstöðu.