Greinarkorn um daga
Fréttir|5. nóvember 2014
"Við erum að verða eins og ofskreytt jólatré með alla þessa daga hangandi á okkur," skrifar Guðlaug Sturlaugsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness, í nýju Greinarkorni á vef Skólastjórafélagsins.
Guðlaug gerir þá fjölmörgu daga ársins sem eru tileinkaðir ýmsum málefnum að umtalsefni og segir að sífellt sé verið að benda sér á hinn eða þennan daginn og spurt hvort ekki væri vert að vekja athygli á honum innan skólans. "Í skólanum sem ég starfa í hef ég lagt til að við leggjum til hliðar að minnsta kosti flesta þessara daga, hættum að láta aðra ákveða á hvað við leggjum áherslu heldur tökum stjórnina í okkar hendur. Kennarar þurfa frið til að sinna störfum sínum og ná þeim viðmiðum sem sett hafa verið í námskrá," skrifar Guðlaug.