Greidd verða önnur laun til ákveðinna starfsheita

Fréttir|22. september 2023

Náðst hefur samkomulag um útfærslu á framkvæmd áfangasamkomulags 7. greinar um jöfnun launa milli markaða sem felur í sér að greidd verða önnur laun til ákveðinna starfsheita kennara í leik- og grunnskólum. Fyrsta greiðslan verður innt af hendi um næstu mánaðamót.

Samkomulag hefur náðst milli Kennarasambands Íslands og samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga (SNS) um útfærslu á framkvæmd áfangasamkomulags 7. gr. nefndar um jöfnun launa milli markaða. Um er að ræða samkomulag vegna kennara í leikskólum og grunnskólum.

Útfærslan felst í því að greinar 1.1.4 í kjarasamningi FG og 1.1.6 í kjarasamningi FL um eru virkjaðar á þann hátt að greidd verða önnur laun til ákveðinna starfsheita sem falla undir áfangasamkomulagið. Upphæðir eru mismunandi eftir launasetningu starfsheitanna, 8.000 krónur, 9.000 krónur og 10.000 krónur. Fyrsta greiðslan kemur til framkvæmda 1. október og verður framhald á þeim þar til aðilar hafa komið sér saman um annað, til að mynda í kjaraviðræðum.

Erfitt hefur reynst að ná samkomulagi um útfærslu á 7. grein samkomulags milli opinberra launagreiðenda og stéttarfélaga opinberra starfsmanna um breytingar á skipan lífeyrismála opinberra starfsmanna frá 2016. Unnið hefur verið að málinu með hléum frá 2018 en segja má að vinnan hafi markvisst hafist haustið 2022. Áfangasamkomulagið frá 23. mars síðastliðnum er metið sem táknrænt fyrsta skref í átt að því markmiði að launakjör séu jafn verðmæt milli sambærilegra starfa á almennum og opinberum markaði.

Lokatilraun fram undan

„Markmið KÍ eru algerlega skýr. Verkefnið er að vinna að jöfnun launa milli almenna og opinbera markaðarins til framtíðar. Áfangasamkomulag það sem nú er verða að veruleika er aðeins stutt skref á þeirri leið. Nú þarf að gera lokatilraun til að ná því markmiði á „stóra borðinu“ þar sem sitja fulltrúar allra launagreiðenda og launafólks á opinberum markaði eða þá að öðrum kosti virkja grein samkomulagsins frá 2016 sem flytur verkefni jöfnunar launa inn á borð aðildarfélaga bandalaga opinberra starfsmanna,“ segir Magnús Þór og bætir við:

„Það vekur von um að heilindi ríki við verkið að áfangasamkomulagið hafi komist til framkvæmda hvað varðar sveitarfélögin og von okkar er að stutt sé í fréttir um að framkvæmd þess gagnvart ríkinu sem launagreiðanda nái fram að ganga. Á næstu vikum og mánuðum verður gerð úrslitatilraun og við munum sannarlega virkja félagsfólk í þeirri vinnu,“ segir Magnús Þór.

 

Tafla yfir þau starfsheiti félagsmanna KÍ sem eru starfsmenn sveitarfélaganna og fá greidd önnur laun frá og með 1. október næstkomandi: