Grænfánaverkefnið til valdeflingar nemenda

Fréttir|9. janúar 2024
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, flaggar grænfánanum í leikskólanum Akraseli.

Guðrún Schmidt, sérfræðingur í menntateymi Landverndar, fjallar um að gera heiminn betri með Grænfánaverkefni til valdeflingar nemenda.

„Þegar nemendur í grunnskóla Borgarfjarðar eystri voru spurðir hver tilgangurinn með grænfánaverkefninu væri svaraði einn þeirra að bragði: „Til að gera heiminn betri“. Grunn- og leikskólinn á Borgarfirði eystri er einn þeirra tæplega 200 skóla á öllum skólastigum um land allt sem taka þátt í grænfánaverkefninu.

Grænfáninn er um 30 ára alþjóðlegt skólaverkefni rekið af samtökunum Foundation for Environmental Education (FEE), sem kallast Eco-schools á ensku. Á Íslandi hefur Landvernd rekið verkefnið í rúmlega 20 ár.

Grænfáninn er viðurkenning fyrir skóla sem standa sig vel í menntun til sjálfbærni og eru með árangursríka umhverfisstefnu. Það er útbreiddasta viðurkenning sinnar tegundar í heiminum og taka um 59 þúsund skólar í 74 löndum þátt. Sameinuðu þjóðirnar telja grænfánaverkefnið vera eitt helsta innleiðingartæki fyrir menntun til sjálfbærni í heiminum.

Menntun til sjálfbærni

Bæði á alþjóðlegum og innlendum vettvangi er krafa um að skólar byggi nám sitt á menntun til sjálfbærni. Það kemur m.a. mjög skýrt fram í heimsmarkmiði 4 um menntun fyrir alla og svo í aðalnámskrá hérlendis.

Markmiðið með menntun til sjálfbærni er að efla gildi, hæfni og getu einstaklinga til að stuðla að sjálfbærri þróun innan samfélaga. Helstu áherslur menntunar til sjálfbærni eru m.a. að nemendur takist á við þverfagleg viðfangsefni og að kennarar noti til þess fjölbreyttar og skapandi kennsluaðferðir. Gott er að tengja viðfangsefni við nærsamfélagið og eigið líf nemenda en þjálfa um leið hnattræna vitund þeirra.

Nemendur eiga að hafa áhrif bæði innan skólans og út í samfélagið, sem valdeflir þá og eykur hæfni þeirra í getu til aðgerða. Menntun til sjálfbærni er umbreytandi nálgun þar sem verið er að endurmeta gildi og viðhorf og hugsa framtíðina upp á nýtt með opnum huga. Menntun til sjálfbærni á erindi í allar kennslustundir og ætti að tengjast öllu námi.

Nemendur á unglingastigi í Vatnsendaskóla vinna verkefni úr námsefninu Loftslagssmiðjur. Þeir völdu að búa til spil sem fjallar um loftslagsmál.

UNESCO leggur áherslu á að nálgast menntun til sjálfbærni á þann hátt að allur skólinn sé þátttakandi og þurfi að gangast undir breytingar. Skólinn og starfsmenn hans vinna með sjálfbæra þróun að leiðarljósi og gefa nemendum tækifæri til að koma hugmyndum sínum í framkvæmd og vera virkir. Menntun til sjálfbærni á að endurspeglast í starfsháttum skóla, samskiptum og skólabrag eins og stendur í aðalnámskrá. Því er mikilvægt að til séu verkfæri og farvegur, eins og grænfánaverkefnið, sem innleiða menntun til sjálfbærni í skólum á heildstæðan hátt um allan heim.

Grænfánaverkefnið

Skólar sem taka þátt í grænfánaverkefninu velja sér, á hverju tímabili, eitt til þrjú þemu til að vinna með. Í boði eru þemun hnattrænt réttlæti, lýðheilsa, orka, vatn, átthagar og landslag, neysla og hringrásarhagkerfið, vistheimt, náttúruvernd, lífbreytileiki og loftslagsbreytingar. Einnig geta skólarnir komið með eigin hugmynd að þema.
Síðan stíga skólarnir sjö skref:

  1. Kosin er umhverfisnefnd þar sem nemendur hafa mikið vægi.
  2. Staða umhverfismála og menntunar til sjálfbærni í skólanum er metin.
  3. Sett eru markmið og búin til aðgerðaáætlun.
  4. Fram fer eftirlit og endurmat á aðgerðum.
  5. Málefnunum er fundinn farvegur í kennsluna hjá öllum og eru tengd við skólastarfið á margvíslegan hátt.
  6. Nemendur hafa áhrif og upplýsa aðra innan og utan skólans og jafnvel fá aðra með til aðgerða.
  7. Nemendur vinna umhverfissáttmála sem á að einkenna tímabilið og allir eiga að þekkja og fara eftir.

Það tekur skóla oftast tvö ár að stíga öll skrefin. Þá geta skólarnir sótt um úttekt og fengið grænfána afhentan við hátíðlega athöfn ef þau standast kröfur verkefnisins. Eftir það fer skólinn aftur í gegnum skrefin sjö með nýtt þema og nýja umhverfisnefnd. Í gamalgrónum grænfánaskólum er menntun til sjálfbærni hluti af daglegu skólastarfi og komin á nokkurs konar sjálfstýringu sem sýnir m.a. hversu vel verkefnið virkar.

Starfsfólk menntateymis Landverndar veitir grænfánaskólum margvíslega aðstoð, fræðslu og hvatningu, m.a. í formi kynninga, ráðgjafar, funda, ráðstefna og vinnustofa. Mikið af námsefni er í boði fyrir alla aldurshópa, bæði í formi námsbóka og verkefna í verkefnakistu. Bein tenging er við heimsmarkmiðin þannig að grænfánaskólar vinna sjálfkrafa í þeim.


Ljósmynd Freyrs Thors, nemanda við Fjölbrautaskólann við Ármúla, var í öðru sæti í innanlandskeppni Umhverfisfréttafólks en vann svo fyrsta sætið í alþjóðlegri keppni. Myndin heitir: „We don't care, do you?“

Landvernd rekur einnig annað stórt alþjóðlegt verkefni í menntun til sjálfbærni sem kallast Umhverfisfréttafólk. Nemendur sem taka þátt í Umhverfisfréttafólki miðla upplýsingum um umhverfis- og sjálfbærnimál á gagnrýninn, fjölbreyttan og skapandi hátt og eiga síðan kost á að taka þátt í árlegri keppni hérlendis og erlendis. Nemendur frá Íslandi hafa unnið í alþjóðlegri keppni í tvígang. Umhverfisfréttafólk er kjörið verkefni til að valdefla nemendur og þjálfa gagnrýna og skapandi hugsun.

Grænfánaverkefnið hefur í gegnum árin þróast úr umhverfismenntaverk­efni í öfluga leið til að styðja skóla í menntun til sjálfbærni og að vinna eftir markmiðum aðalnámskrár og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Verkefnið valdeflir kennara, nemendur og skólasamfélagið allt í menntun til sjálfbærni og eflir getu til aðgerða í átt að sjálfbærri þróun.

Úr loftslagskvíða í aðgerðir

Við mannkyninu blasa stórar áskoranir á borð við loftslagshamfarir, tap á líffræðilegri fjölbreytni og aukið óréttlæti. Markmið alþjóðasamfélagsins er að koma okkur á braut sjálfbærrar þróunar með heimsmarkmiðin að leiðarljósi.

Þessar áskoranir eru flóknar, oft yfirþyrmandi og ógnvekjandi og kalla á róttækar breytingar í samfélögum okkar. Það er því skiljanlegt að margir eigi við loftslags- og framtíðarkvíða að stríða, ekki síst unga fólkið. Fullorðið fólk ber ábyrgð á því að fara í nauðsynlegar aðgerðir og breytingar og einnig að hjálpa unga fólkinu að vinna bug á þessum kvíða.

Grænfánaverkefnið gefur ungmennum tól og tæki til að hafa áhrif og gera eitthvað í málunum og minnka þar með um leið hugsanlegan kvíða. Árangur og reynsla sýna að grænfánaskólar taka þátt í að gera heiminn betri, rétt eins og nemandi í grunnskóla Borgarfjarðar eystri orðaði það.“ 

Nánari upplýsingar er að finna á vefnum menntuntilsjalfbaerni.is

Guðrún Schmidt, sérfræðingur í menntateymi Landverndar skrifar. Guðrún er með M.A. í menntun til sjálfbærni frá háskólanum í Rostock í Þýskalandi.