Gönguferðir kennara í Reykjavík
Fréttir|22. maí 2020

Grunnskólakennarar í Reykjavík gengu á Hellisheiði og Móskarðahnjúka.
Síðasta vika var annasöm hjá Kennarafélagi Reykjavíkur þar sem haldnir voru tveir trúnaðarmannafundir og tvær gönguferðir voru farnar. Í fyrri göngunni var gengið á Hellisheiði en gengið var frá skíðaskálanum í Garðstungu þar sem hjónin Óskar Magnússon og Blómey Stefánsdóttir bjuggu frá því á fyrri hluta áttunda áratugarins síðasta og fram á þann níunda.
Í síðari gönguferðinni var gengið á Móskarðahnjúka en þeir eru yngsti hluti Esjunnar og myndaðir við líparítgos undir jökli og þess vegna ljósir á að líta. Sá hæsti er hinn austasti þeirra en hann er 807 m á hæð.
Mætingin var góð í báðar göngurnar og félagsmenn ánægðir með framtakið. Hér að neðan eru myndir úr ferðunum.