Góð þátttaka í smásagnasamkeppni
Fréttir|18. september 2017

Vel á annað hundrað smásögur voru sendar inn í smásagnasamkeppni KÍ, Heimilis og skóla og Samtaka móðurmálskennara.
Vel á annað hundrað smásögur voru sendar inn í smásagnasamkeppni KÍ, Heimilis og skóla og Samtaka móðurmálskennara, en frestur til að skila inn sögum rann út á miðnætti. Þetta er þriðja árið í röð sem keppnin er haldin og þátttaka í henni hefur alltaf farið fram úr vonum.
Dómnefnd fær nú sögurnar til yfirlestrar, en í henni sitja Kristín Ómarsdóttir skáld, Kristján Jóhann Jónsson, dósent á Menntavísindasviði HÍ, og Bryndís Jónsdóttir, fyrir hönd Heimilis og skóla. Verðlaun í keppninni verða veitt við hátíðlega athöfn á Skólamálaþingi KÍ sem fram fer í Hörpu á kennaradaginn 5. október næstkomandi.