Góð þátttaka í forsíðumyndakeppninni
Fréttir|13. febrúar 2017

Rétt rúmlega eitt hundrað ljósmyndir bárust í samkeppni um forsíðu Ferðablaðsins 2017.
Rétt rúmlega eitt hundrað ljósmyndir bárust í samkeppni um forsíðu Ferðablaðsins 2017. Frestur til að skila inn ljósmyndum rann út 10. febrúar síðastliðinn.
Þetta er í fjórða skipti sem Orlofssjóður KÍ efnir til keppni af þessu tagi og nú sem fyrr hefur þátttaka verið góð meðal félagsmanna KÍ. Dómnefnd mun á næstu vikum fara yfir ljósmyndirnar. Verðlaun verða veitt fyrir forsíðumyndina, sem verður fyrir valinu, og nema þau 45 þúsund krónum.
Orlofssjóður KÍ þakkar öllum þeim sem sendu inn ljósmynd kærlega fyrir þátttökuna. Ráðgert er að Ferðablaðið 2017 komi út í marsmánuði.