Góð samvera í Urriðabóli

Það var mikið fjölmenni og afar notaleg stemning í Urriðabóli síðdegis 23. janúar sl. Það er ótrúlegt hvað margt leikskólafólk lagði á sig að koma á Skapandi leikskólastarf í hundleiðinlegu veðri. Það segir okkur auðvitað hversu mikilvægir þessir viðburðir eru leikskólasamfélaginu. Takk kærlega fyrir að koma og njóta með okkur. Ragnheiður Gunnarsdóttir leikskólastjóri og hennar fólk sagði frá starfinu í Heilsuleikskólanum Urriðabóli.
Það var mikið fjölmenni og afar notaleg stemning í leikskólanum Urriðabóli síðdegis 23. janúar sl. Það er ótrúlegt hvað margt leikskólafólk lagði á sig að koma á Skapandi leikskólastarf í hundleiðinlegu veðri. Það segir okkur auðvitað hversu mikilvægir þessir viðburðir eru leikskólasamfélaginu. Takk kærlega fyrir að koma og njóta með okkur.
Ragnheiður Gunnarsdóttir leikskólastjóri og hennar fólk sagði frá starfinu í Heilsuleikskólanum Urriðabóli.
Öll börn ættu að alast upp við það að læra að virða heilsu sína og annarra sem ómetanleg verðmæti og grundvöll fyrir fullnægjandi lífi. „Lengi býr að fyrstu gerð" segir máltækið og hafa rannsóknir sýnt að því fyrr sem við byrjum að móta hegðun og viðhorf barnanna okkar þeim mun meiri möguleika eiga þau á því að þróa með sér vitund um mikilvægi og ábyrgð á eigin heilsu. Það er jafnframt í okkar höndum að búa þeim umhverfi og þekkingu sem hvetur þau til heilsusamlegra ákvarðana er verða hluti af lífsstíl þeirra til framtíðar. Því er heilsuefling höfð að leiðarljósi í einu og öllu í starfi heilsuleikskóla.
Markmið Heilsustefnunnar er að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik. Hugmyndafræðin er sú að ef barn fær holla næringu og mikla hreyfingu, þá sprettur fram þörf til að skapa. Markmið Heilsustefnunnar er jafnframt að stuðla að heilsueflingu í leikskólasamfélaginu.
Ragnheiður sagði okkur frá því að í leikskólanum er starfandi fagteymi, leikskólakennarar, sem hefur algerlega verið frábært að hafa þegar verið er að stækka leikskólann. Leikskólinn Urriðaból hefur verið starfræktur frá árinu 2022 í byggingu sem er við hlið Costco, en stækkaði mikið þegar nýtt húsnæði var tekið í notkun vorið 2024. Nú þegar hafa flestar deildar leikskólans verið opnaðar, en ekki er búið að opna yngst deildina, en það verður gert núna á vormánuðum.
Það er nýjung í leikskólanum þar sem starfsmanna aðstaða er öll á annarri hæð og veitir leikskólakennurum og öðrum starfsmönnum næði til hvíldar og undirbúnings. Leikskólinn er einstaklega falleg bygging og að sögn starfsfólks ákaflega velheppnuð fyrir leikskólastarf.
Faghópur um skapandi leikskólastarf þakkar Ragnheiði og hennar fólki kærlega fyrir sérlega faglegt, notalegt og fræðandi síðdegi í fallega leikskólanum þeirra. Hér má sjá fullt af ljósmyndum sem við tókum.
