Glæsilegri tónleikaveislu lokið

Fréttir|23. mars 2022

Samstarf Nótunnar og Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna – fjögur atriði á dagskrá SÁ næsta haust

Um 280 nemendur frá 36 skólum léku listir sínar á fimm svæðistónleikum Nótunnar um helgina og óskar framkvæmdastjórn Nótunnar öllum þátttakendum á nýafstöðnum svæðistónleikum innilega til hamingju með glæsilega frammistöðu.

Nemendur sýndu því gríðarlega mikinn áhuga að freista þess að fá að spila einleik með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna en alls 18 nemendur fluttu kafla úr konsert á svæðistónleikunum. Að velja úr svo glæsilegum atriðum sem raun bar vitni, var hægara sagt en gert fyrir Oliver Kentish, stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna. Niðurstaðan varð sú að hann valdi fjögur atriði til að leika á tónleikum hljómsveitarinnar næsta vetur.

 

Eftirfarandi nemendur urðu fyrir valinu:

Þórdís Emilía Aronsdóttir og Emilía Rut Kristjánsdóttir fiðlunemendur í Suzukitónlistarskólanum í Reykjavík

J.S. Bach - Konsert fyrir 2 fiðlur í d-moll (allt verkið)

 

Vasyl Zaviriuka píanónemandi í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar

F.J. Haydn - Konsert í D-dúr Hob.XVIII/11 (allt verkið)

 

Margrét Lára Jónsdóttir fiðlunemandi í Menntaskóla í tónlist

W.A. Mozart – Konsert nr. 5 í A-dúr (1. kafli)

 

Haraldur Áss Liljuson fiðlunemandi í Allegro Suzukitónlistarskólanum

C.A. Beriot – Fiðlukonsert í a-moll op 104 (1. kafli)

 

Tónleikarnir verða að öllum líkindum seinnipartinn í nóvember eða í byrjun desember.

Myndir frá öllum tónleikunum verða settar inn á síðu Nótunnar á næstu dögum.