Glæsileg Nóta að baki

Framkvæmdastjórn Nótunnar 2024 óskar öllum þeim sem komu fram á tónleikum um liðna helgi innilega til hamingju með frábæra frammistöðu.
Framkvæmdastjórn Nótunnar óskar öllum þátttakendum í uppskerutónleikum Nótunnar um síðustu helgi innilega til hamingju með frábæra frammistöðu og afraksturinn af því góða starfi sem unnið er í tónlistarskólum landsins! Tónlistarskólar landsins eru um 80 talsins og um 14.000 nemendur stunda nám innan tónlistarskólakerfisins. Tilgangur uppskeruhátíðarinnar er að beina kastljósinu að samfélagi tónlistarskóla og tónlistarnemenda með það að leiðarljósi að styrkja ungt tónlistarfólk og efla tónlistarmenntun og tónlistarlíf í samfélaginu!
Samstarf Nótunnar og Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna
Oliver Kentish, stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna, hefur boðið fimm tónlistarnemum sem tóku þátt í konsert-tónleikum Nótunnar að koma fram sem einleikarar með hljómsveitinni næsta haust en að velja atriði úr svo flottum hópi var ekki létt verk!
Eftirtöldum nemendum (raðað í stafrófsröð) er boðið að koma fram á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna laugardaginn 23. nóvember 2024 kl. 16:00 í Seltjarnarneskirkju:
- Ásgerður Sara Hálfdanardóttir, píanó – konsert í a-moll eftir E. Grieg – Tónlistarskóli Kópavogs
- Björney Anna Aronsdóttir, fiðla – Scherzo Tarantella eftir H. Wieniawsky – Menntaskóli í Tónlist
- Kamilla Kerekes, horn – Morceau de concert op. 94 eftir Camille Saint-Saens – Tónlistarskólinn á Egilsstöðum
- Sigrún Klausen, fiðla – konsert í e-moll op. 64 eftir F. Mendelssohn-Bartholdy – Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar
- Sigurjón Jósef Magnússon, þverflauta – Konsert í G-dúr eftir Carl Stamitz – Tónlistarskólinn á Akranesi
Þess má geta að fleiri myndir munu birtast í albúminu hér að neðan.