Glænýr leikskóli Urriðaból í Garðabæ

Laugardaginn 2.mars var opið hús í glænýjum leikskóla, Urriðaból sem stendur við Holtsveg í Garðabæ. Leikskólinn verður samrekinn af Skólum ehf. ásamt fyrri byggingu Urriðabóls sem er rétt fyrir neðan þessa glæsilegu byggingu í Kauptúni (við hliðina á Costco). Það er nú varla við hæfi að segja eldri bygging, en leikskólinn var opnaður í september 2022 og er því aðeins eins og hálfsárs gamall. Lesa meira....
Laugardaginn 2.mars var opið hús í glænýjum leikskóla, Urriðaból sem stendur við Holtsveg í Garðabæ. Leikskólinn verður samrekinn af Skólum ehf. ásamt fyrri byggingu Urriðabóls sem er rétt fyrir neðan þessa glæsilegu byggingu í Kauptúni (við hliðina á Costco). Það er nú varla við hæfi að segja eldri bygging, en leikskólinn var opnaður í september 2022 og er því aðeins eins og hálfsárs gamall.
Skólar ehf. leggja megin áherslu á Heilsueflandi leikskóla. Heilsustefnan er byggð á heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur, heitinnar, fyrrum leikskólastjóra í Skólatröð í Kópavogi. „Heilbrigð sál í hraustum líkama“ eru einkunnarorð leikskólanna og unnið er með markvissum hætti að bættri líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu og velferð barnanna. Heilsuefling er höfð að leiðarljósi í einu og öllu í starfi heilsuleikskólanna og auk þess að starfa í anda Heilsustefnunnar eru allir leikskólar Skóla ehf. þátttakendur í verkefninu „Heilsueflandi leikskóli“ í samvinnu við Embætti landlæknis.
Það er Ragnheiður Gunnarsdóttir sem stýrir Urriðabóli, en hún hefur langa reynslu sem leikskólastjóri hjá Skólum ehf. Hún ásamt Hönnu Halldóru Leifsdóttur leiddi blaðamann um nýju bygginguna.
Nýja byggingin er afar falleg, Hulda Jónsdóttir er arkitekt leikskólans og það var verktakafyrirtækið Þarfaþing ehf. sem byggði leikskólann. Mjög er vandað til verka og má sjá þar margar frábærar nýjungar í hönnun leikskólabyggingar. Sem dæmi má nefna að notaðir eru litir til þess að auðvelda leiðina á hverja deild fyrir sig. Byggingin er Svansvottuð og krefst það þess m.a. að ákveðið birtustig á að vera innandyra og því þurfti að bæta við loftagluggum hér og þar. Í heild er afar bjart í byggingunni og spurning hvort það komi ekki til með að þurfa einhver gluggatjöld vegna þess að hún stendur á afar skjólgóðum stað beint í suður. Við gerð lóðarinnar var m.a. leitað álits barnanna í Urriðabóli og komu þau með margar tillögur sem settar voru í framkvæmd.
Í garðinum er sú nýjung að í burstalaga húsum eru þrjú útisalerni fyrir börnin. Á fótboltavellinum eru föst vel hönnuð mörk. Svo vekur urriðinn mikla athygli, hægt er að fara inn í hann og upp á hann og renna sér niður rennibraut. Mjög fallegur urriði og setur mikinn svip á garðinn. Á einum stað í garðinum við bygginguna er blátt undirlag og sólkerfinu komið fyrir. Mjög fallegt og verður örugglega leiksvæði eldri barnanna. Tveir afgirtir garðar eru fyrir yngri hluta skólans og eru leiktæki þar afar vönduð. Svo má ekki gleyma dásamlegri náttúru sem er steinsnar frá leikskólabyggingunum báðum. Það er ómetanlegt að komast með börnin svo nálægt náttúruperlu sem Urriðavatn er.
Öll starfsmannaaðstaða er til fyrirmyndar og er hún höfð á annarri hæð, en það er nokkuð sem er orðið algengt í hönnun nýrra leikskóla. Það er almennt ánægja með það meðal starfsfólks leikskóla, það er gott að draga sig út úr erli dagsins og hvíla sig og hlaða batteríið í augnablik. Þessi bygging hefur það fram yfir aðrar byggingar sem byggðar hafa verið að gert er ráð fyrir sólbaðsaðstöðu fyrir starfsfólk, út af gengt frá kaffistofu. Frábært og verður pottþétt mikið notað í þessu sólríka umhverfi.
Það er ástæða til að óska Garðabæ innilega til hamingju með fallegan leikskóla og óska starfsfólki framtíðarinnar í Urriðabóli gæfuríks starfs í sérlega glæsilegum leikskóla.
Að vanda voru teknar fjölmargar myndir sem hægt er að skoða hér.

Hanna Halldóra, leikskólafulltrúi og Ragnheiður leikskólastjóri