Gildi tungumálanáms
Sigríður Ragna Birgisdóttir, framhaldsskólakennari í Flensborgarskólanum, skrifar vikupóst sem birtist á vef FF. Yfirskrift vikupóstsins er: Gildi tungumálanáms á tímum „Google“. Sigríður Ragna gerir tungumálakennslu að umtalsefni í pistli sínum og segir það afturför að samkvæmt nýrri aðalnámskrá eigi nemendum að nægja þrjár annir til að ná tökum á tungumáli.
„Kennsla erlendra tungumála gegnir því mikilvægu hlutverki í að veita nemendum þá þekkingu og færni sem þeir þurfa að búa yfir á tímum hnattvæðingar og aukinna erlendra samskipta, hvort sem er hér heima eða erlendis. Að vera læs á aðra menningaheima er lykillinn að umburðarlyndi og mikilvægur þáttur í því að vinna gegn fordómum. Læsi á erlendum tungumálum og skilningur á öðrum menningarheimum er góður og eftirsóknaverður eiginleiki í samfélagi þar sem erlent samstarf gegnir æ stærra hlutverki á vettvangi hinna ýmsu greina atvinnulífsins,“ segir Sigríður Ragna meðal annars í grein sinni.