Gildi

Vikan sem nú er að enda er upphaf stærsta álagsprófs sem íslenskt skólakerfi hefur mætt. Ég hygg að ég mæli fyrir munn okkar allra þegar ég lýsi stolti yfir því hvernig til tókst.
Hugtakið “fordæmalaus” hefur verið notað óspart síðustu daga enda þarf samfélag okkar nú að takast á við ástand sem er ólíkt flestu sem áður hefur sést. Sannleikurinn er þó auðvitað sá að hinu óþekkta er jafnan mætt með hinu þrautreynda: Ótta með umhyggju; óróa með festu; illsku með gæsku.
Vikan sem nú er að enda er upphaf stærsta álagsprófs sem íslenskt skólakerfi hefur mætt. Ég hygg að ég mæli fyrir munn okkar allra þegar ég lýsi stolti yfir því hvernig til tókst. Þreytt en þrautgóð stétt skólafólks mun nú ganga inn í helgina og vonandi fá verðskuldaða hvíld áður en næsta áskorun bíður rétt handan við hornið.
Ástandið mun versna áður en það batnar. Við getum gengið að því vísu. Ekkert okkar veit með vissu hvað næstu vikur munu bera með sér. Af liðinni viku sjáum við þó hvernig best er að mæta þeim.
Mig langar að vitna í kennarann, skáldið, kvæðamanninn og myndlistarmanninn Gunnar J. Straumland sem dró saman kjarnann í starfi okkar með snotrum hætti í ljóðinu Gildi í bókinni Höfuðstafur, fyrr í vetur:
Okkar val og okkar starf
er að leiða og fræða,
augljóslega einnig þarf
ýmislegt að ræða,
einkum það sem allra helst
eykur gildi manna;
í tillitssemi og trausti felst
taktur samskiptanna.
Sú er lausnin, senn á ný,
með sjónum fullvissunnar
að margar hendur magnast í
mætti samvinnunnar.
Það má draga margvíslegan lærdóm af því hverjir eru sýnilegastir þegar allt leikur í lyndi en hverfa þegar gefur á bátinn. Áföll leiða síðan styrkleika hvers samfélags í ljós. Um allt land, á hverri kennarastofu og öllum samskiptamiðlum og í samskiptum við fjölmörg heimili, hafa kennarar stigið fram og byggt stuðningsnet. Verkefni okkar er að tryggja að hvert barn og ungmenni finni að það tilheyri enn þá samfélagi, sé öruggt og hafi ástæðu til að halda áfram þroska sínum, námi og starfi. Upp úr akri skólanna vex framtíðin. Framtíðin er aldrei mikilvægari en á stundum en þessum.