Getur hrynþjálfun bætt lestrarfærni hæglæsra barna?

Fréttir|23. júní 2025

Björg Þórsdóttir, tónmenntakennari og kórstjóri, kannaði hvort hrynþjálfun gæti haft áhrif á lestrarfærni barna sem teljast hæglæs. Rannsóknasjóður KÍ styrkti rannsóknina og nú liggur lokaskýrsla fyrir og hér að neðan er sagt frá því helsta sem kom fram.

Lestur byggir á tveimur lykilþáttum: umskráningu og lesskilningi. Umskráning snýst um að þekkja tengsl bókstafa og hljóða, á meðan lesskilningur byggist á hugrænni úrvinnslu þess sem lesið er. Til að vera talin læs þurfa börn að hafa náð tökum á báðum þáttum. Lesfimipróf eru notuð til að meta sjálfvirkni, nákvæmni og hrynjandi í lestri og þar með heildarfærni barna.

Lesfimi endurspeglar hvernig hugræn ferli – svo sem athygli, minni, málskilningur og sjón- og hljóðskyn – vinna saman í lestri. Sjálfvirkur, nákvæmur og eðlilegur lestur gefur til kynna að þessi ferli séu í góðu jafnvægi en stirður lestur gefur til kynna hugsanlegan vanda. Raddlestur og stuðningspróf eins og Orðleysur og Sjónrænn orðaforði veita ítarlegri innsýn í stöðu nemenda. Þegar börn eru undir viðmiði í lesfimi geta verið undirliggjandi raskanir eins og dyslexía sem tengist taugalíffræðilegum frávikum, einkum í hljóðkerfisúrvinnslu heilans.

Hljóðkerfisvitund – næmi fyrir og hæfni til að vinna með hljóðuppbyggingu tungumálsins – er talin lykilþáttur í lestri og kemur sterklega við sögu í tengslum við tónlist. Rannsóknir hafa ítrekað bent til jákvæðra áhrifa tónlistar, sérstaklega hryn- og taktvinnu, á lestrarfærni. Sem tónmenntakennari hefur höfundur greint tengsl milli barna sem glíma við lestrarvanda og þeirra sem eiga erfitt með takt, hreyfingar og samhæfingu í tónlistartímum. Þetta styður við hugmyndina um að hrynvitund og samhæfing heilahvela geti haft áhrif á lestrarfærni.

Fjölmargar erlendar rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum tónlistar á lestrarþróun. Rannsókn Katie Overy (2003) sýndi að börn með dyslexíu áttu sérstaklega erfitt með hryn þótt ekki væri marktækur munur í lestri eftir tónlistartíma. Sama má segja um rannsókn Jayne M. Standley og Jane E. Hughes (1997), þar sem tónlistartímar virtust bæta ritunar- og ritmálsfærni barna þótt ekki væri skýr framþróun í lestri. Aðrar rannsóknir hafa hins vegar sýnt fram á að betri hljóðkerfisvitund, sem þjálfast með hrynendurtekningu, getur styrkt lestrartengda þætti eins og hljóðgreiningu og orðaskilning.

Taktur og tónar eru náskyld tungumálinu og styðja við heyrnrænan skilning sem er undirstaða lestrar.

Rannsókn í tveimur skólum

Á þessum grunni var framkvæmd rannsókn í tveimur grunnskólum í Reykjavík, Ísaksskóla og Fossvogsskóla, þar sem kannað var hvort hrynþjálfun gæti haft áhrif á lestrarfærni hæglæsra barna. Tólf þátttakendur voru valdir í samráði við sérkennara úr hvorum skóla og tóku þátt í skipulagðri tónlistarþjálfun með áherslu á hryn, klappmynstur og samhæfingu hugar og handar. Þjálfunin stóð yfir í 6–12 vikur á önn. Verkefnin voru fjölbreytt og æfingarnar voru byggðar á leik, hreyfingu og tónlist, meðal annars með hermiklappi og boltakasti í takt við tónlist og rímur. Notaðar voru þekktar þulur og tónverk til að efla takt- og málskyn og æfingar með sjónrænum vísbendingum til að örva umskráningu.

Töluverður munur var á niðurstöðum eftir skólum, lítill munur var á framförum nemenda í Ísaksskóla samanborið við viðmiðunarhópinn, eftir hrynþjálfunina. Í Fossvogsskóla var munurinn mikill í samanburði við viðmiðunarhóp, þar sem fleiri nemendur náðu viðmiði 1 á lesfimiprófi.

Hóparnir úr Ísaksskóla fá allir tónmenntakennslu, einu sinni í viku allt skólaárið, auk þess sem markvisst er unnið með söng í skólastofum og sal skólans. En hóparnir úr Fossvogsskóla í 2. bekk voru ekki í tónmenntakennslu, fyrir utan eina söngstund á viku.

Lesa má úr niðurstöðunum mikilvægi tónmenntakennslu, ekki síst í yngstu bekkjunum þar sem þróun lestrarfærni er hvað hröðust. Taktur og tónar eru náskyld tungumálinu og styðja við heyrnrænan skilning sem er undirstaða lestrar. Þeir nemendur sem fengið höfðu tónmenntakennslu innan skólans tóku minni framförum á lesfimiprófum eftir hrynþjálfun heldur en nemendur sem höfðu ekki fengið tónmenntakennslu. Verkefnið nýttist þeim nemendum vel, en niðurstöður verkefnisins verða vonandi til þess að vekja athygli á mikilvægi þess að tónmennt sé kennd í grunnskólum sem faggrein.