Getur forritun eflt rökhugsun?

Fréttir|25. júní 2024

Brynja Stefánsdóttir og Heiða Björg Árnadóttir, kennarar við Stapaskóla, skrifa um rannsókn sína á áhrifum aukinnar og markvissrar kennslu í forritun á rökhugsun nemenda. Brynja og Heiða fengu styrk úr Rannsóknasjóði KÍ.

Hröð þróun tækni í samfélagi okkar krefst þess að námssamfélagið aðlagi sig að þörfum framtíðarinnar. Nemendur nútímans eru að mennta sig fyrir samfélag og störf framtíðarinnar sem við í skólasamfélaginu vitum ekki nákvæmlega hvernig muni líta út. Hvaða störf verða í boði eftir 15, 20 eða 25 ár er ekki augljóst að spá fyrir um og því er nauðsynlegt að horfa gagnrýnum augum á það sem dýrmætur tími nemenda okkar fer í yfir skóladaginn.

Það sem við teljum okkur vita er að hæfni í samskiptum, góð rökhugsun, þrautseigja og skilningur á tækni og forritun er mikilvægt að nemendur tileinki sér. Nemendur okkar eru í dag nær eingöngu neytendur í tækniheimi samtímans og á það að vera hluti af okkar starfi sem grunnskólakennarar að sjá til þess að þeir hafi möguleika á að vera ekki einungis neytendur í framtíðinni heldur að þeir skilji tæknina og geti nýtt sér sýna þekkingu og getu til að móta hana.

Brynja Stefánsdóttir og Heiða Björg Árnadóttir, kennarar við Stapaskóla hafa unnið að uppbyggingu námsáætlana í forritunarkennslu við skólann. Stapaskóli er nýjasti skóli Reykjanesbæjar og innan veggja skólans er lögð mikil áhersla á tækni, vísindi, sköpun í námi og fjölbreytta kennsluhætti meðal annars með samþættingu námsgreina. Brynja er náttúrufræðikennari sem kennir smiðjur frá leikskólastigi upp í 10. bekk og leggur áherslu á forritun í tækni- og vísindasmiðju á miðstigi og Heiða er stærðfræðikennari á unglingastigi og heldur einnig utan um ýmis verkefni tengd forritun á unglingastigi.

„Í grunninn vaknaði áhugi okkar á að kanna hver áhrif aukinnar og markvissari kennslu í forritun hefði á rökhugsun nemenda og þá sérstaklega með tengingu við stærðfræði. Það fyrsta sem við áttuðum okkur á var að til þess að geta kannað rökhugsun þurftum við fyrst að finna leið til að mæla hana og því hófst vinnan þar.“

Fræðilegur bakgrunnur

Jo Boaler fjallar um í bókinni Mathematical mindset (2015) um að hæfni nemenda til að beita rökhugsun og þrautalausnum og tengir það beint við þróun á vaxtarhugarfari og þrautseigju í námi. Í rannsóknum Kalelioglu og Gulbahar (2014) og í rannsókn Basu o.fl. (2016) koma fram niðurstöður í þá átt að forritun sé góð leið til að efla lausnarleitargetu nemenda og Basu o.fl. rannsaka sérstaklega samþættingu annarra námsgreina með forritunarverkefni sem þráðinn í gegnum námið. Basu o.fl. segja að nemendur geti tileinkað sé aukna þekkingu á þennan hátt en árangur sé meiri séu verkefnin byggð upp þannig að þau stigþyngist og að kennari stýri vinnu með nemendum, byggi stoðir (e. scaffolding) í gegnum vinnuna og þekking og orðaforði byggist upp jafnt og þétt. Olteanu (2002) fjallar um tengsl milli forritunar og aukins skilnings í stærðfræði. Þannig styður nám í forritun nemendur í að efla sig í stærðfræðinámi sem krefst líkt og forritun útsjónarsemi, seiglu og þrautalausnarhugsun.

Í Aðalnámskrá grunnskóla (2013) er námskrá í upplýsinga- og tæknimennt en þar er lítið talað um forritun í námskránni nema þegar rætt er um samþættingu við aðrar námsgreinar. Það hve lítil áhersla er á tækni og þar með talið forritun í námskrá er kannski ein af ástæðum þess að lítið sem ekkert er gefið út af námsefni á íslensku í faginu. Eitt af því sem getur komið í veg fyrir markvissa forritunarkennslu er hve lítið af námsefni hefur verið gefið út á Íslandi síðustu árin sem tengist tæknisamfélagi nútímans. Þetta á sérstaklega vel við í öllu sem tengist upplýsinga- og tæknimennt en Menntamálastofnun hefur ekki gefið út neitt efni sem tengist forritun síðan árið 2014 þegar út kom vefurinn Margmiðlun – stafræn miðlun. Því lá augljósast við hjá okkur að setja upp aðgengilega vefsíðu með því efni sem yrði til og notast væri við á meðan á rannsókninni stæði og er stefnan að vefurinn þróist áfram í takt við áframhaldandi þróunarstarf okkar.

Rannsóknaraðferðir

Rannsóknin var unnin frá hausti 2021 fram á vor 2024. Notast var við blandaðar rannsóknaraðferðir með hálftilraunasniði þar sem ekki var valið í hópa með slembni þar sem megindlegum gögnum var safnað í gegnum matstækið sem við þróuðum í rannsókninni en einnig var notast við eigindlegar aðferðir í gegnum samtöl við nemendur og áhorf kennara í kennslustundum (Navarro og Foxcroft, 2019; Sigurlína Davíðsdóttir, 2013, bls. 233). Fyrsta skólaárið var rannsóknin unnin á ólíka vegu á mið- og unglingastigi. Annars vegar var unnið með forritunarkennslu í smiðjum á miðstigi þar sem nemendur komu tvisvar í viku í 80 mínútna lotur og hins vegar á unglingastigi þar sem nemendur fengu eina kennslustund á viku yfir árið.

Þegar við rýndum í gögnin okkar eftir fyrsta árið sáum við að meiri árangur var af því að kenna forritun í þéttari, styttri lotum þar sem fleiri kennslustundir voru á styttra tímabili en með því að vera með eina kennslustund á viku yfir allt skólaárið. Þetta gerði það að verkum að við endurskoðuðum skipulagið á kennslunni á unglingastigi og unnum því aðeins öðruvísi næstu tvö ár.

Nemendur sem kynnast forritun og læra hana fyrr eiga auðveldara með að tileinka sér hana og sýna meiri árangur

Niðurstöður og umræður

Rannsókn sem er smá í sniðum (framkvæmd innan eins skóla og einungis í hluta hans) er ekki hægt að nota til að fullyrða of mikið út frá en hún gefur okkur samt vísbendingar um margt þegar rýnt er í gögnin og niðurstöður:

  • Nemendur sem kynnast forritun og læra hana fyrr eiga auðveldara með að tileinka sér hana og sýna meiri árangur.
  • Nemendur sýna aukna þrautseigju í námi, bæði í forritunarverkefnum og í stærðfræðiþrautum eftir að hafa farið í gegnum kennslu í forritun.
  • Þegar matstæki í rökhugsun sem þróað var samhliða rannsókninni er lagt fyrir nemendur sjást í fleiri tilvikum framfarir ef nemendur hafa unnið samviskusamlega í forritunarverkefnum.
  • Nemendur sem hafa farið áður í gegnum forritunarverkefni eru líklegri til að aðstoða samnemendur sína í verkefnunum og eiga meiri samskipti við kennara á meðan á kennslustundum stendur.
  • Þörf er á því að vinna markvisst með orðaforða nemenda í tengslum við forritun til að auka virkni og skilning á efninu.
  • Nemendur með námsörðugleika sem há þeim í bóknámi geta komist áfram í forritunarverkefnum án mikils stuðnings ef áhugi er fyrir hendi. Forritunartungumálið og umhverfið sem unnið er í virðist ekki koma í veg fyrir það.

Ýmsar leiðir er hægt að fara þegar kennari eða skóli vill setja forritun inn í kennslu hjá sér þrátt fyrir að ekki sé til mikið námsefni á íslensku til að nýta sér. Við völdum að nýta okkur Scratch og Code.org vegna þess að okkur þótti það bæði aðgengilegt fyrir okkur og nemendur okkar.

Forritunarnám

Stærsti hluti rannsóknarinnar var að þróa áfram forritunarnám innan skólans, bæði á mið- og unglingastigi og setja upp vefsíðu með ýmsum hjálpartækjum sem geta vonandi einnig nýst öðrum kennurum. Vefsíðan forritunarnám inniheldur allt sem þróað var sem hluti af þessari rannsókn og er lögð sérstaklega áhersla á að byggja upp og vinna með orðaforða- og hugtakaskilning nemenda.

Vefurinn inniheldur nú þegar:

  • Matstæki fyrir rökhugsun, lausnir við matstækinu og skjal til afritunar til að vinna úr að loknum fyrirlögnum.
  • Kennsluáætlanir, leiðbeiningar og orðaspjöll fyrir miðstig.

Efni sem er nú þegar í vinnslu á leið inn á vefinn:

  • Kennsluáætlanir, leiðbeiningar, glærukynningar og orðaspjöll fyrir unglingastig út frá verkefnum í Code.org

Sé horft til þeirra rannsókna sem reifaðar eru hér að ofan má sjá að forritunarkennsla þarf að vera fastur punktur í kennslu barna frá unga aldri. Slíkt gefur tengingu við þá nútímamenntun sem samfélag okkar telur þörf á. Við þurfum sem skólasamfélag að samræmast um þær kröfur sem við leggjum til barna sem speglast við það sem þau þurfa þegar út í samfélagið er komið. Okkar helsta markmið er að veita þeim bestu mögulegu tækifærin til að blómstra.

Heimildir