Getum þjónað breiðari hópi nemenda

Helga Sigríður Þórsdóttir, konrektor í MS, segir lærdóminn af lokun skólans eiga eftir að gagnast vel í framtíðinni.
„Við sjáum fyrir okkur að geta þjónað breiðari hópi nemenda í framtíðinni með þeim aðferðum sem við höfum verið að tileinka okkur á þessum tímum," segir Helga Sigríður Þórsdóttir, konrektor í MS, í myndbandi sem er það sjöunda í röð mynda sem fjalla um skólastarf á tímum COVID-19. Alls hefur útgáfusvið framleitt níu myndbönd um málefnið og bíða tvö frumsýningar.
Helga Sigríður segir að þegar fyrstu fregnir hafi borist af veirufaraldrinum hafi verið gripið til ýmissa aðgerða; svo sem er varðar sótthreinsun og þrif í byggingum skólans. En um miðjan mars breyttist staðan en þá var framhaldsskólum landsins gert að senda nemendur heim.
Kennarar þurftu að tileinka sér nýjar aðferðir á örfáum dögum. Haldin voru námskeið um fjarfundi, talglærugerð og uppbyggingu rafrænna vinnubóka svo dæmi séu tekin. Tveimur vikum síðar var haldinn starfsmannafundur á Teams. „
Allir voru rosalega kátir, rosalega glaðir, gaman að hittast, gaman að sjást í mynd og við stjórnendur gátum hrósað fólki fyrir gríðarlegt átak því það bara lögðust allir á eitt," segir Helga Sigríður.
Við mælum með áhorfi á frásögn Helgu Sigríðar.
Heimildum um einstæða tíma safnað
Útgáfusvið KÍ hefur látið festa á filmu frásagnir kennara, stjórnenda og náms- og starfsráðgjafa af skólastarfi í miðjum COVID-19 faraldri. Þetta hafa verið einstæðir tímar í skólasögunni þar sem skólafólk hefur lagst á eitt við að tryggja nám og velferð barna og ungmenna. Tekin hafa verið risaskref í tæknimálum í mörgum skólum og líklegt að margt af því sem hefur áunnist muni nýtast í skólastarfi framtíðar, þegar samfélagið fer aftur í fyrra horf.
Þessi myndbönd hafa þegar verið frumsýnd og ekki annað hægt en að mæla með þeim öllum.
Jón Páll Haraldsson skólastjóri
Ásta Kristín Svavarsdóttir leikskólastjóri
Gróa Sigurðardóttir leikskólakennari
Sandra Jónasdóttir grunnskólakennari