Gervigreindin afskaplega góður aðstoðarmaður

Fréttir|14. október 2025

„Þó gervigreindin geri margt vel er hún ekki nærri því eins spes og við, og það er það sem við þurfum að varðveita,“ segir Ragnar Þór Pétursson kennari. Hann fjallar um gervigreind og skólastarf í nýjasta Fræi fræðslunefndar KÍ.

„Gervigreindin getur orðið alveg afskaplega góður aðstoðarmaður ef hún er notuð rétt, en ef hún er notuð án umhugsunar og undirbúnings þá getur hún eyðilagt fyrir okkur, bæði kennurum og nemendum. Við sem kennarar verðum að gæta okkur á því að láta ekki gervigreind koma í staðinn fyrir almennilegt námsefni,“ segir Ragnar Þór Pétursson kennari, sem fjallar um gervigreind og skólastarf í fimmta Fræi ársins, málefni sem hann segir snerta alla kennara.

Hér er hægt að horfa á erindið.

Hann sýnir hvernig hann og hans samstarfsfólk nýtir gervigreindina í kennslu unglingadeildar Norðlingaskóla, svo sem til þess að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda, eins og með því að breyta formi námsefnis, sniða það að áhugasviði einstakra nemenda eða tryggja að það sé aðgengilegt á móðurmáli hvers og eins.


Geimskutla tekur á loft frá Íslandi. Mynd sem Ragnar bjó til með notkun gervigreindarforrits fyrir verkefni um Mars. 

Ragnar Þór sýnir meðal annars hvernig hægt er, með notkun gervigreindar, að búa til hlaðvarp úr námsefni og heimildum, námsleiki, minnisspjöld, gagnvirkar glærur og jafnvel tónverk og lifandi myndefni. Til þess nýtir hann ýmis verkfæri, eins og Google Notebook og Canva, sem eru aðgengileg öllum kennurum án endurgjalds, og forrit á borð við Udio og Midjourney, en áskriftir að slíkum gervigreindarforritum eru í flestum tilfellum styrkhæfar.

Aðferðirnar má svo  auðveldlega yfirfæra og nota á öllum skólastigum og í öllum skólagerðum.

Ragnar Þór sýnir einnig hvernig hægt er að nýta gervigreindina til að láta raunverkefni nemenda lifna við, svo sem með því að láta þau gera málverk að hreyfimynd, texta að tónverki eða viðtal að hlaðvarpi, aðgengilegu á mörgum tungumálum. En eins og hann bendir á er mikilvægt að gervigreindin nýtist við nám, en komi ekki í stað þess. 

„Nám er áreynsla og nám er umhugsun, og notkun gervigreindar sem sneiðir framhjá bæði áreynslu og umhugsun kemur í veg fyrir að nám eigi sér stað,“ segir Ragnar Þór.

Gervigreind getur orðið alveg afskaplega góður aðstoðarmaður ef hún er notuð rétt

Það er sama hvað manni finnst um gervigreindina. Með því að nemendur vinni skapandi verkefni með gervigreind þjálfast þeir í ritun, í því að koma hugsunum sínum í orð og í því að orða hlutina með notkun atviks- og lýsingarorða, segir Ragnar Þór. „Nemandi, sem kannski er búinn að mála málverk og glæðir það lífi með gervigreind í einhverju skrefi seinna í sköpunarferlinu, það er ekki hægt að saka hann um skort á skapandi innleggi í verkefnið sitt.“

„Gervigreindin hefur eitt sem önnur tækni hefur ekki, að ef skólakerfið og kennslan okkar er ekki skapandi fyrirbæri, fyrirbæri sem tengist þráðbeint áhugasviðum, hæfileikum og menningunni innan hvers einasta skóla og er nýtt til þess að falla að þeirri menningu og því þekkingarsamfélagi sem við viljum skapa, ef við nýtum gervigreindina ekki til þess - sem þjón - þá verður hún húsbóndi og þá mun hún móta skólana í sinni eigin mynd.“

„Og í sannleika sagt, þó gervigreindin geri margt vel, er hún ekki nærri því eins spes og við, og það er það sem við þurfum að varðveita.“