Gervigreind: Hefur breytt kennslu á mörgum sviðum

Hjörvar Ingi Haraldsson framhaldsskólakennari segir að gervigreind sé frábær ritari en hræðilegur yfirmaður. Hjörvar ræddi við Svövu Jónsdóttur í nýjasta tölublaði Skólavörðunnar.
„Það sem ég á við er að gervigreind getur skapað spennandi og áhugavert efni en hún getur ekki metið hvort það sé rétt, gagnlegt eða viðeigandi. Því þarf notandinn að hafa góða þekkingu á efninu sem hann er að vinna með og geta endurskoðað og endurbætt niðurstöðurnar frá gervigreindinni,“ segir Hjörvar Ingi Haraldsson framhaldsskólakennari.
Hjörvar Ingi bendir á að gervigreind hafi breytt kennslu á mörgum sviðum og að mikilvægt sé að kennarar séu meðvitaðir um það. „Ég held að ritgerðir séu ekki úrelt fyrirbæri en það þarf að endurhugsa hvernig þær eru metnar. Það er ekki hægt að gera ráð fyrir að nemendur skrifi ritgerðir án hjálpar frá gervigreind eða öðrum upplýsingatækjum. Það er því nauðsynlegt að kennarar setji skýrar reglur um notkun gervigreindar í ritgerðum og að nemendur séu heiðarlegir um það.“
„Ég tel að það sé auðvelt að nota gervigreind án þess að skilja hana almennilega og því getur verið hætta á að hún sé ekki nýtt á hagkvæman hátt. Það er því mikilvægt að kennarar hafi grunnþekkingu á því hvernig gervigreind virkar og hvernig hún getur nýst í kennslu,“ segir Hjörvar Ingi Haraldsson framhaldsskólakennari.
„Ég mæli með að allir kennarar sem hafa áhuga á að nota gervigreind í kennslu skoði efni sem Ethan Mollick og Lilach Mollick tóku saman fyrir kennara sem ekki þekkja gervigreindina. Þetta eru fimm myndbönd sem fara yfir helstu hugtök og notkun gervigreindar í kennslu og námi.“
Myndböndin eru:
- Kynning á gervigreind
- Útskýring á „Large Language Models“ sem er gervigreindin sem við erum að tala um
- Almenn notkun á gervigreind fyrir kennara og nemendur
- Notkun á gervigreind fyrir kennara
- Notkun á gervigreind fyrir nemendur
„Eftir þetta ætti kennarinn að skilja efnið nokkuð vel og vera tilbúinn að stíga fyrstu skrefin við að nýta sér gervigreindina.“
„Svo mæli ég með að kennarar innan skólans stofni hóp sem hittist kannski einu sinni í mánuði í skólanum og ræði saman. Þar geta þeir deilt hugmyndum, verkefnum, vandamálum og lausnum sem tengjast gervigreind. Svona hópar ættu að hjálpa mjög mikið til við að auka skilning og áhuga á gervigreind.“
Notendur verða að skilja efnið
Hjörvar Ingi segir að gervigreind sé frábær ritari en hræðilegur yfirmaður. „Það sem ég á við er að gervigreind getur skapað spennandi og áhugavert efni en hún getur ekki metið hvort það sé rétt, gagnlegt eða viðeigandi. Því þarf notandinn að hafa góða þekkingu á efninu sem hann er að vinna með og geta endurskoðað og endurbætt niðurstöðurnar frá gervigreindinni. Það eru tvær mikilvægar ástæður fyrir þessu.“
„Fyrri ástæðan er að því betri skilgreiningu sem notandinn gefur gervigreindinni á verkefninu því betri verður niðurstaðan. Ef fyrirspurn notanda er óljós eða ónákvæm getur gervigreindin skilað óviðkomandi eða röngum upplýsingum.“

„Seinni ástæðan er að gervigreind er ekki fullkomin og getur gert mistök eða mistúlkað gögnin. Það er því mikilvægt að notandinn fari yfir niðurstöðurnar frá gervigreindinni og leiðrétti þær ef þörf krefur. Notandinn getur jafnvel beðið gervigreindina að laga sjálf niðurstöðu sína með því að gefa henni endurgjöf eða nánari leiðbeiningar. Ef notandinn þekkir ekki sjálfur efnið vel þá getur hann ekki unnið úr niðurstöðunum og þarf að treysta á þær í blindni. Þetta getur leitt til verri niðurstaðna eða hreinlega rangs efnis.“
„Þess vegna þarf alltaf að tryggja að notendur skilji efnið sem er unnið með og geti metið gildi og gæði niðurstöðunnar frá gervigreindinni.“
Reglur um gervigreind í skólastofunni
„Ég geri ráð fyrir að allir nemendur hafi aðgang að gervigreind og noti hana við réttar aðstæður. Þetta er frábært vinnutæki sem mun spara tíma og það er nauðsynlegt að þjálfa nemendur í notkun gervigreindar áður en farið er út á vinnumarkaðinn.“
Að því sögðu hefur Hjörvar Ingi haft eftirfarandi reglur í huga gagnvart nemendum í tengslum við þær námsgreinar sem hann kennir, sem eru tölvugreinar og stærðfræði:
„Gervigreindin má aldrei vera stjórinn, heldur á að vera aðstoðarmaðurinn. Það þýðir að þið (nemendurnir) þurfið að hafa þekkingu á efninu sem þið eruð að nota hana í. Oft skilar hún röngum niðurstöðum og ef ykkur vantar þekkinguna þá getið þið ekki lagað niðurstöðuna. Við svona aðstæður ættuð þið EKKI að nota hana. Þið verðið að skilja niðurstöður hennar til að geta notað þær. Ef þið notið rangar niðurstöður frá gervigreind þá er það á ykkar ábyrgð, ekki á ábyrgð gervigreindarinnar.
Þegar þið notið gervigreind þá eigið þið að láta vita hvar þið gerðuð það í verkefninu og einnig hvað þið skrifuðuð í inntakið fyrir fyrirspurnina.
Gæðin á úttakinu frá gervigreindinni fara eftir gæðunum á inntakinu. Þetta er eitthvað sem þarf að læra, þjálfa og leggja vinnu í.
Ef það er sagt við ykkur að í ákveðnum verkefnum eigið þið EKKI að nota gervigreind þá er það bannað og verkefnaskil dæmd ógild ef þið hafið notað gervigreind við vinnslu á verkefninu.“
Hjörvar Ingi segir að í sambandi við ritgerðavinnu og breytingar á þeim áherslum sé gott að hugsa um hvað það er sem viðkomandi ætli að fá með ritgerðavinnunni. „Ef hugmyndin er að nemendur eigi að sýna fram á þekkingu, skilning og gagnrýna hugsun á ákveðnu efni þá er hægt að nota gervigreind sem hjálparritara en ekki sem höfund. Svo má hugsa sér að ritgerðavinna feli í sér meiri áherslu á rannsóknarvinnu hjá nemandanum og að hann nýti sér hjálp gervigreindar við vinnsluna.“
„Nemendur þurfa þá að kunna að setja upp ritgerðina, laga málfarið og orðaforða ásamt því að skilja efnið mjög vel. Svo getur partur af námsmatinu verið að nemendur þurfi að verja ritgerðina og þá eykst þekking þeirra á efninu þar sem þeir þurfa að geta staðið með niðurstöðunum sínum og útskýrt þær. Þannig að ég er ekki sammála þeim sem hafa sagt að ritgerðir verði úreltar en ég held að þetta sé frábært tækifæri til þess að endurhugsa áherslur í námsmati ritgerða.“

Það sem virðist vera ómögulegt í dag getur orðið að veruleika á morgun
Þarf að efla kennslu í gagnrýninni hugsun
Hjörvar Ingi talar um að gagnrýnin hugsun sé mikilvæg færni sem þurfi að efla í kennslu. „Í nútímasamfélagi erum við stöðugt að fá upplýsingar frá ólíkum uppsprettum en ekki eru allar þær upplýsingar réttar, gagnlegar eða áreiðanlegar. Gervigreind hefur gert það mögulegt að falsa myndir, myndbönd, hljóð, texta og fleira með einföldum hætti. Það er oft erfitt að sjá muninn á því sem er búið til af gervigreind og því sem er alvöru. Því þarf að tryggja að nemendur læri að taka inn allar upplýsingar með gagnrýninni hugsun og pæla í henni.“
Samkvæmt Hjörvari Inga þýðir þetta að nemendur þurfi að geta:
- Greint í sundur staðreyndir og skoðanir.
- Athugað uppsprettur og áreiðanleika þeirra.
- Borið saman og metið mismunandi sjónarhorn.
- Rökstutt og gagnrýnt niðurstöður.
- Leitað að staðfestingu eða mótsögn á eigin hugmyndum.
- Verið opnir fyrir nýjum upplýsingum og breytingum á skoðunum.
„Gagnrýnin hugsun er ekki bara mikilvæg til þess að meta upplýsingar frá gervigreind heldur einnig frá öðrum tækjum, fjölmiðlum og fólki. Gagnrýnin hugsun er því grundvallarfærni í nútímasamfélagi og það er nauðsynlegt að kennarar leggi áherslu á að þróa hana hjá nemendum.“
Kennarar setji skýrar reglur
„Það er erfitt að spá fyrir um framtíðina í tengslum við gervigreind því hún er í stöðugri þróun og breytingu. Það sem virðist vera ómögulegt í dag getur orðið að veruleika á morgun. Það sem við getum sagt með vissu er að gervigreind er komin til að vera og að hún hefur mikil áhrif á allar greinar og svið í samfélaginu.“
„Það er því mikilvægt að kennarar séu meðvitaðir um möguleika og áskoranir sem gervigreind býður upp á og að þeir nýti sér hana sem vinnutæki og námsauka. Ef kennarar kynna sér ekki gervigreind geta þeir misst af tækifærum til að bæta kennslu sína og auka skilning og áhuga nemenda.“
Hjörvar Ingi segir að einnig sé hætta á að nemendur noti gervigreind til að leysa verkefni kennarans án þess að skilja eða læra nokkuð, sem endar með því að kennarinn metur gervigreindina í staðinn fyrir nemandann. „Það er því nauðsynlegt að kennarar setji skýrar reglur um notkun gervigreindar í námi og námsmati og að þeir tryggi að nemendur skilji og geti beitt gervigreind á ábyrgan hátt.“
Svava Jónsdóttir ræddi við Hjörvar Inga Haraldsson í nýjasta tölublaði Skólavörðunnar.