Gervigreind getur stutt við kennslu

„Við sjáum mikla möguleika til að nýta gervigreindina til að létta á kennurum, bæta yfirsýn og gera gögn aðgengilegri,“ segir Páll Ásgeir Torfason, stafrænn leiðtogi MMS, í samtali við Svövu Jónsdóttur.
Sarf mitt snýst fyrst og fremst um að byggja upp stafrænt umhverfi sem styður kennara, skólastjórnendur og sveitarfélög. Við erum að þróa ný kerfi og lausnir sem geta einfaldað skólastarfið, aukið gagnsæi og bætt skilvirkni,“ segir Páll Ásgeir Torfason sem starfar sem stafrænn leiðtogi hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS).
„Eitt af stærstu verkefnunum er sameiginlegur þjónustuvefur sem kallast Mín miðstöð og má lýsa sem eins konar Ísland.is fyrir starfsfólk skóla. Þar geta kennarar, skólastjórnendur og annað starfsfólk grunnskóla nálgast alla þjónustu MMS á einum stað. Á vefnum verður hægt að leggja fyrir matstæki, nýta fjölbreytt námsefni, skoða niðurstöður mats, kynna sér Aðalnámskrá og sjá yfirlit yfir nemendaskráningu í gegnum nemendagrunn.“
„Markmiðið er að skapa miðlægt þjónustukerfi fyrir allt skólakerfið þannig að upplýsingar og þjónusta séu samankomnar á einum stað í stað þess að vera dreifðar milli ólíkra kerfa. Á árinu þróuðum við nýtt innritunarkerfi fyrir framhaldsskóla til að tryggja að stærsti árgangur sögunnar kæmist í nám.“
„Það var bæði krefjandi og ótrúlega ánægjulegt verkefni sem sýndi vel hvað samstillt vinna og góð hönnun geta skilað miklu. Þegar Mín miðstöð opnar fá grunnskólar heildstæða yfirsýn yfir námsárangur og velferð nemenda á einfaldan og aðgengilegan hátt. Þannig geta kennarar og skólastjórnendur tekið gagnadrifnar ákvarðanir sem styðja við skólastarf, ekki til að refsa heldur til að bæta.“
Gervigreind og menntun
Páll Ásgeir segir að sífellt stærri hluti starfs síns tengist gervigreind. „Við sjáum mikla möguleika til að nýta hana til að létta á kennurum, bæta yfirsýn og gera gögn aðgengilegri.“
„Við stöndum á spennandi tímamótum þegar kemur að menntun. Þrátt fyrir að gervigreind sé ný tækni hefur hún þegar haft áhrif á hvernig við lærum, hugsum og kennum. Hún getur gert námið áhugaverðara, einstaklingsmiðaðra og markvissara. En líkt og með aðra tækni þurfum við að staldra við og spyrja okkur hvernig við viljum sjá hana nýtast í skólastarfi og hvaða áhrif hún getur haft á nám og kennslu.“
„Gervigreindin er þó sérstök að því leyti að hún kom inn í líf okkar á örskömmum tíma og varð hluti af daglegum veruleika áður en við höfðum raunverulega áttað okkur á breytingunum. Reynt hefur verið að móta reglur og viðmið en raunin er sú að erfitt verður að framfylgja þeim í reynd.“
„Ljóst er að gervigreind getur stutt við nám á fjölbreyttan hátt. Hún getur til að mynda reiknað, greint og tekið saman upplýsingar en hún skilur hvorki samkennd, virðingu né mannlega hlýju. Þess vegna tel ég að hlutverk kennarans verði enn mikilvægara í framtíðinni. Kennarinn þarf að leiða nemendur í gegnum heim þar sem tækni, falsupplýsingar, gervimyndir og gervimyndbönd eru úti um allt og erfitt getur verið að greina rétt frá röngu.“
Notendavæn kerfi
Páll Ásgeir segir að yfirbygging stafrænna mála hjá MMS sé í raun lítil. Hann og annar starfsmaður vinna sérstaklega að þessum málaflokki innan stofnunarinnar en sérfræðingar frá öðrum sviðum taka virkan þátt í þróunarvinnunni.
„Einkar gott samstarf er til dæmis við teymið á matssviði sem vinnur að gerð matsferils og tryggir að framsetning niðurstaðna sé fagleg og áreiðanleg. Auk þess vinnum við náið með fjölmörgum samstarfsaðilum utan stofnunarinnar, svo sem forriturum, hönnuðum, verkefnastjórum og fleiri sérfræðingum, sem hjálpa okkur að gera sýn okkar að veruleika.“
„Kennarinn þarf að leiða nemendur í gegnum heim þar sem tækni, falsupplýsingar, gervimyndir og gervimyndbönd eru úti um allt og erfitt getur verið að greina rétt frá röngu“
„Við leggjum jafnframt mikla áherslu á þátttöku kennara í þessari þróun. Þeir leiða fræðslu, kynna lausnir og veita endurgjöf sem hefur reynst ómetanleg. Með þessum hætti tryggjum við að kerfin sem við erum að þróa séu ekki aðeins tæknilega sterk heldur líka notendavæn og í takt við þarfir skólasamfélagsins.“
Gervigreind í sérkennslu
Hvað varðar gervigreind í sérkennslu segir Páll Ásgeir að tækifærin séu sérstaklega mikil. Að hans sögn getur gervigreind aðlagað námsefnið að þörfum hvers barns hvort sem það á erfitt með lestur, einbeitingu eða tungumál. Hún geti lesið upp texta, einfaldað orðalag, þýtt texta eða búið til myndrænar útskýringar.
„Í raun er best að spyrja gervigreindina beint hvernig hún geti stutt við nemanda með ákveðna sérþörf. Til dæmis má spyrja hvernig gætir þú hjálpað nemanda í 8. bekk með lesblindu?“ eða „Getur þú teiknað mynd sem styður nemanda í 3. bekk með sjónrænt skipulag?“
„Kennarinn getur þannig fengið hugmyndir, útskýringar og verkfæri sem hjálpa honum að mæta nemendum á fjölbreyttan hátt. Þetta er ekki töfralausn heldur stuðningstæki sem getur sparað tíma og aukið skilning á einstaklingsbundnum þörfum.“
„Einstaklingsmiðun er þó flókið viðfangsefni. Hún snýst ekki aðeins um að aðlaga nám að hæfni nemandans heldur einnig um að viðhalda áskorun og vexti. Ef verkefni eru einfölduð of mikið er hætta á að nemandinn vaxi ekki í námi sínu þar sem áskorunin er horfin og þá aukum við ekki lengur við skilning og þekkingu hans á viðfangsefninu.“
„Á sama tíma verðum við að gæta þess að ofurtrú á tækni leiði ekki til þess að við hættum að hugsa um hvernig við getum sjálf aðlagað samfélagið að einstaklingnum og förum að treysta því að tæknin leysi það fyrir okkur.“

Ég tel gagnlegt að líta á gervigreind eins og manneskju.
Ábyrg notkun gervigreindar
Páll Ásgeir segir að erfitt sé að skilgreina nákvæmlega hvað felist í ábyrgri notkun gervigreindar einfaldlega vegna þess að fólk veit ekki hvert tæknin mun leiða það. „Ég hef rætt við sérfræðinga sem starfa mjög nálægt þróun þessara tóla og jafnvel þeir viðurkenna að óvissan sé mikil. Kennarar og nemendur þurfa því að huga sérstaklega að persónuvernd, öruggri gagnameðferð, höfundarrétti og ábyrgu heimildanámi.“
„Ég tel gagnlegt að líta á gervigreind eins og manneskju. Ef ég bið Dóru frænku, sem er mjög góð í íslensku, að lesa yfir ritgerðina mína, leiðrétta villur og benda á heimildir þá er það eðlilegt. En ef hún skrifar ritgerðina fyrir mig þá væri það svindl.“
„Sama gildir um gervigreind. Þess vegna er mikilvægt að í skólum fari fram opið samtal milli kennara og nemenda um hvar línan liggur milli stuðnings og svindls. Slík umræða er nauðsynleg á tímum hraðra breytinga því hún kennir bæði nemendum og kennurum að takast á við nýjan veruleika af ábyrgð og gagnrýni.“
Gervigreind er komin til að vera
Páll Ásgeir er grunnskólakennari að mennt með áherslu á samfélagsgreinar á unglingastigi og hefur lokið diplómanámi í verkefnastjórnun og opinberri stjórnsýslu. Samhliða starfi sínu hjá MMS stundar hann meistaranám við Harvard-háskóla í stjórnun menntastofnana og alþjóðlegri stefnumótun í menntamálum.
Páll Ásgeir vann áður sem leiðtogi málefna grunnskóla hjá Mosfellsbæ og sem deildarstjóri deildar stafrænnar kennslu og miðlunar við Háskóla Íslands. Hann hefur einnig starfað sem kennari í Fellaskóla og tekið þátt í fjölmörgum áhugaverðum verkefnum hjá Reykjavíkurborg, meðal annars við innleiðingu Google Education og nýrra vefsíðna grunnskóla.
„Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á nýrri tækni og reynt að fylgjast vel með þróun hennar, bæði vegna starfs míns og af hreinum áhuga. Þegar fyrstu útgáfur gervigreindar komu fram fannst mér það stórmerkilegt að geta talað við vef og fengið svar samstundis. Fljótt varð þó ljóst að tæknin var langt frá því að vera fullkomin og þyrfti mikla þróun. Hins vegar hefur gervigreind þróast jafnhratt á örfáum árum og önnur tækni gerði áður fyrr á heilu áratugunum.“
„Áhugi minn á notkun gervigreindar í námi hefur aukist mikið eftir að ég fór að kenna námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands um notkun gervigreindar í kennslu. Þau námskeið hafa reynst mér ómetanleg því þar hef ég fengið að sjá hvernig kennarar nálgast tæknina, hvaða tækifæri þeir sjá og hvaða áskorunum þeir mæta. Þessi samtöl hafa dýpkað skilning minn á því hvernig gervigreind getur raunverulega stutt við kennslu og daglegt starf í skólastofunni.“
„Ég tel afar mikilvægt að kennarar prófi sig áfram með gervigreind því þessi tækni er komin til að vera og mun hafa mikil áhrif á starf kennara og skólastarf í heild. Af þessum ástæðum höfum við hafið samstarf við Anthropic og Google um að opna aðgang að gervigreind fyrir kennara, einfaldlega til að þeir geti kynnst og prófað tæknina á eigin forsendum.“